Viðskipti erlent

For­stjóri Rio Tin­to hættir eftir um­deildar hella­sprengingar

Kristín Ólafsdóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa
Jean-Sebastien Jacques, fráfarandi forstjóri Rio Tinto.
Jean-Sebastien Jacques, fráfarandi forstjóri Rio Tinto. Getty/Scott Barbour/Stringer

Forstjóri námurisans Rio Tinto, sem meðal annars rekur álver ISAL í Straumsvík, mun láta af störfum ásamt nokkrum öðrum háttsettum starfsmönnum fyrirtækisins vegna framgöngu Rio Tinto í Ástralíu. 

Fyrirtækið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að eyðileggja heilaga staði frumbyggja Ástralíu en í maí síðastliðnum voru tveir hellar í Pilbara í Vestur-Ástralíu sprengdir í loft upp. Það var gert þrátt fyrir áköf mótmæli frumbyggjasamfélagsins en hellarnir voru taldir með merkilegri stöðum í landinu með tilliti til fornleifarannsókna.

Mannvistarleifar hafa fundist í hellunum sem bentu til þess að fólk hafi haft þar búsetu fyrir 46 þúsund árum. Undir hellunum var hinsvegar verðmætt járngrýti sem Rio Tinto ásældist og því var ákveðið að sprengja þá. 

Í morgun kom loks yfirlýsing frá stjórn Rio Tinto þar sem sagði að í ljósi mótmæla almennings og hluthafa hafi forstjóranum, Jean-Sébastien Jacques, verið gefinn kostur á að láta af störfum. Hann mun þó gegna stöðu forstjóra fram í mars á næsta ári, eða uns nýr forstjóri kemur til starfa.

Rekstur Rio Tinto á Íslandi hefur verið þungur undanfarin ár. Endurskoðun hefur staðið yfir á starfseminni í Straumsvík og hefur ISAL sagst hafa lokun álversins til skoðunar. Þá er kjaradeila starfsmanna álversins við fyrirtækið komin á borð ríkissáttasemjara. 


Tengdar fréttir

Telja sig peð í tafli Rio Tinto og Landsvirkjunar

Starfsmenn álversins í Straumsvík telja Rio Tinto tefla sér fram í deilu álfyrirtækisins fyrir betri raforkusamningi við Landsvirkjun. Kjaradeilan er komin til ríkissáttasemjara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×