Innlent

Hafa náð samkomulagi við Miðflokkinn

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins. Vísir/Vilhelm

Samkomulag náðist nú síðdegis við Miðflokkinn um meðferð stofnunar opinbers hlutafélags, málið sem þeir hafa hampað mjög í ræðustól Alþingis síðustu daga – og jafnvel verið sakaðir um að hafa uppi málþóf um.

Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir í samtali við Vísi að flokksmenn séu „bærilega sáttir“ við samkomulagið.

„[…] og teljum að þar sé búið að ná fram ákveðnum vörnum fyrir frekari umframútgjöld úr ríkissjóði annars vegar og síðan hvað skipulagsmál varðar hins vegar, þá sérstaklega með áherslu á framtíð Sundabrautar,“ segir Bergþór.

„Með þessu fær fjármálaráðherra heimild til að stofna þetta opinbera hlutafélag og þá er Bjarni Benediktsson með það verkefni í fanginu að stofna þetta nýja félag þegar hann telur tímann réttan, manna stjórn og ganga frá hluthafasamkomulagi og tryggja að verkefni séu unnin í skynsamlegri tímaröð, með sem mestri hagkvæmni og tryggja hagkvæmni ríkissjóðs með til þess bærum leiðum.“

Bergþór segir að gefið verði út framhaldsnefndarálit sem áréttar þá þætti sem samkomulagið er um. Atkvæðagreiðsla verði eftir aðra umræðu og málið síðan í framhaldinu væntanlega afgreitt með hefðbundnum hætti fyrir þinglok.

Í þessu samkomulagi við Miðflokkinn felst þó ekki heildarsamkomulag um þinglok, sem enn á eftir að semja um. En eru Miðflokksmenn nú búnir í bili?

„Það er ekkert búið fyrr en það er búið,“ segir Bergþór. „En allavega hvað áhyggjur okkar í Miðflokknum varðar þá hefðum við auðvitað vilja ganga miklu lengra og ná því fram að taka þessa Borgarlínunálgun í heild til endurskoðunar því við teljum að þarna sé óskynsamlega á haldið. En við teljum að með þessu sé búið að reisa ákveðnar girðingar,“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×