Innlent

Von á 50 þúsund pökkum af ill­f­áan­lega malaríu­lyfinu til landsins í dag

Eiður Þór Árnason skrifar

Von er á því að 50 þúsund pakkar af malaríulyfinu Chloroquine komi til landsins síðar í dag. Um er að ræða gjöf til Landspítalans frá lyfjafyrirtækinu Alvogen sem vonast er til að muni nýtast til meðferðar á Covid-19.

Sendingin kemur alla leið frá Indlandi þar sem lyfin voru framleidd en þau eru nú orðin illfáanleg vegna mikillar eftirspurnar. Lyfið hefur verið notað víða um heim og meðal annars verið gefið Covid-19 sjúklingum á smitsjúkdómadeild Landspítalans.

Útgöngubann og útflutningsbann hafði áhrif

„Þetta er búin að vera mikil og löng ferðasaga frá því að við keyptum lyfið fyrir rúmum tveimur vikum síðan,“ sagði Róbert Wessmann, forstjóri Alvogen, í samtali við Bítismenn í morgun.

Sjá einnig: Gefa Land­spítala 50 þúsund skammta af malaríu­lyfi til með­ferðar á veiru­sýktum

Útgöngubann sem var sett á í Indlandi um það leyti sem sendingin fór af stað setti strik í reikninginn og var upphaflega erfitt að koma henni út á flugvöll.

„Við fengum utanríkisráðherra og sendiherra Íslands á Indlandi Guðmund Árna til að hjálpa okkur að koma vörunni þangað en það tók viku að fá heimild lögreglu til að fá að keyra vöruna út á flugvöll.“

Bannað að flytja lyfið úr landi

Þegar forsvarsmenn Alvogen töldu að allt væri frágengið varð svo allt stopp aftur.

„Það var svo fyrir viku síðan að við töldum þetta nú klárt og búin að tollafgreiða vöruna og biðum eftir að hún færi í flutning. En þá svona hálftíma seinna er hringt og búið að afturkalla tollafgreiðsluna og í raun og veru búið að tilkynna okkur að það sé búið að banna það að flytja þetta lyf út úr Indlandi. Einfaldlega vegna þess að öll framleiðslan eigi að notast fyrir Indverja.“

Þá voru góð ráð dýr en aftur var óskað eftir aðstoð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Guðmundar Árna Stefánssonar, sendiherra Íslands á Indlandi.

Með hjálp þeirra og annarra tókst að sögn Róberts að fá vöruna tollafgreidda aftur eftir um viku.

„Við tókum vöruna með fyrsta flugi út úr Indlandi eitthvert og það var til Mið-Austurlanda og þaðan flugum við vörunni til Amsterdam.“

Var sendingunni síðan keyrt til Belgíu þar sem henni verður komið fyrir í flugvél sem flýgur beint til Íslands síðar í dag.

Víða uppselt í heiminum

Líkt og Róbert reiknaði með er malaríulyfið nú orðið illfáanlegt víða.

„Þetta var svolítið kapphlaup við tímann að tryggja Íslandi þennan skammt áður en lyfið varð uppselt. Það er orðið illfáanlegt í Evrópu og í Bandaríkjunum og það er mjög ánægjulegt að þetta hafi gengið.“

Hann segir að niðurstöður lítilla rannsókna bendi til þess að lyfið gagnist við meðferð á Covid-19. Þó er enn beðið niðurstöðu úr stærri rannsóknum og því ekki endanlega hægt að fullyrða um virknina.

„Það er búið að gera um ellefu litlar stúdíur á því og það klárlega sýnir virkni í þeim stúdíum. Þetta lyf er notað núna mjög víða í Evrópu og í Bandaríkjunum sem meðhöndlun við Covid en það er ekki búið að klára formlega stóra stúdíu sem er gert undir venjulegum kringumstæðum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×