Skoðun

Allir saman nú !

Kristófer Oliversson og Jakob Frímann Magnússon skrifar
Hvað er að ske?

Fréttir um að Delta Air­lines hafi ákveðið að hætta flugi til Íslands frá og með miðjum október eru grafalvarlegar. Félagið bætist með þessu í stækkandi hóp þeirra flugfélaga sem ákveðið hafa að draga úr framboði sæta til Íslands eða hætta alfarið flugi hingað.

Hvað skyldi valda?

Skv. upplýsingum forsvarsmanna EasyJet er það helst hin alræmda íslenska dýrtíð sem olli ákvörðun þess félags um að draga saman seglin í Íslandsfluginu. Kemur það fáum á óvart þó fyrir liggi að t.a.m. hótelin í landinu hafi lækkað verðskrár sínar og veitingastaðir ýmsir.

Jakob Frímann Magnússon stjórnarmaður FHG

Hvað er til ráða?

Það blasir við að það er sjálfur ríkissjóður sem hefur hagnast mest á velgengni ferðaþjónustunnar hér og þegar gefur á bátinn þarf að endurskoða stóra samhengið.

Sú vinna stendur yfir hvað snertir útgjaldaliði ríkissjóðs. Þá stendur hitt eftir – sjálft okur ríkisins á öllum þeim meginþáttum þeirrar dýrtíðar sem svo illa spyrst út meðal þjóðanna.

Hvað þarf ríkið að gera?

Opinberir aðilar þurfa tafarlaust að beina augum að eigin þætti í þeim grafalvarlega vanda sem hér blasir við. Nægir þar að nefna óhóflegar álögur á bensín og áfengi sem og galnar hækkanir fasteignagjalda sem eru að sliga bæði hótel og veitingahús. Þessir þættir okurs hins opinbera þola enga bið ef draga á úr því óhóflega verðlagi sem setur okkur ítrekað efst á svörtu listana yfir dýrustu lönd heims. Sömuleiðis þarf að taka skuggahagkerfi ferðaþjónustunnar föstum tökum. Þar liggja milljarðar óinnheimtir í formi virðisaukaskatts, staðgreiðslu, tryggingargjalds, gistináttaskatts og fasteignagjalda.

Ríkið þarf að taka afgerandi forystu í að blása nýju lífi í ferðaþjónustuna, sjálfa mjólkurkúna, sem reynst hefur svo gjöful undanfarin ár, en stendur nú höllum fæti.

Ríkið þarf einnig að losa okkar ágæta ferðamálaráðherra undan tímafreku vafstri í dómsmálum, atvinnuvegum öðrum og margþættri nýsköpun, skipa m.a. sérstakan ráðuneytisstjóra ferðamála er gerist öflugur verkstjóri yfir hinu mjög svo brýna verkefni sem fram undan er – í náinni samvinnu við ráðherrann sem þarf að axla hér 150% starf alla daga vikunnar. Þessi ráðstöfun kemur í stað þess óásættanlega álags og dreifingar krafta í allar áttir sem boðið hefur verið upp á undanfarna mánuði og misseri. Mikils er vænst af hinum unga glæsta leiðtoga, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur!

Isavia

Því ber að fagna að öflugur nýr stjórnarformaður hefur tekið við Isavia og löngu tímabært er að þangað verði fenginn öflugur forstjóri án frekari tafa. Farþegaspár þaðan ættu að birtast ársfjórðungslega, en hafa aðeins birst árlega og nú síðast í ársbyrjun. Isavia þarf sömuleiðis að lækka hér lendingargjöld og laða ný öflug flugfélög til landsins hið fyrsta. Slíkt verkefni kallar á öflugan málafylgjumann, nýjum forstjóra til atfylgis.

Öflugrar markaðsherferðar er þörf

Loks ber að ræsa að nýju öfluga markaðsherferð á lykilmörkuðum í anda Inspired by Iceland.

Því verkefni ber ekki að slá á frest við þær alvarlegu aðstæður sem hér hafa skapast.

Íslensk ferðaþjónusta skartar miklum og sérhæfðum mannauði, fjárfestingar í greininni eru verulega miklar og viðvarandi samdráttur og óvissuástand er hreinlega ekki í boði.

Brettum upp ermar og hefjum markvissa sókn að nýju. Þjóðarhagur er í húfi!




Skoðun

Sjá meira


×