Viðskipti innlent

Farþegar Icelandair hringja inn vegna slyssins

Jóhann K. Jóhannsson og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Boeing 737 Max vél Icelandair.
Boeing 737 Max vél Icelandair. Icelandair
Kínversk flugmálayfirvöld ákváðu í nótt að kyrrsetja allar Boeing 737-MAX 8 flugvélar þar í landi eftir flugslysið í Eþíópíu í gær. Þrjár slíkar þotur eru í íslenska flugflotanum og segir framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair ekkert benda til þess að Icelandair muni kyrrsetja sínar vélar. Nokkuð hefur borið á því að viðskiptavinir félagsins hafi haft samband við þjónustuver vegna slyssins í gær.

Boeing 737-MAX 8 flugvél eþíópíska flugfélagsins Ethiopian Airlines sem fórst skömmu eftir flugtak frá Addis Ababa með 157 um borð er önnur flugvél þessarar gerðar sem ferst á tæpu hálfu ári. Fyrra slysið varð þegar flugvél Lion Air fórst á leið sinni frá Indónesíu.

Rætt hefur verið um líkindi með flugslysi Lion Air flugvélarinnar og Eþíópían Airlines í gær en eftir slys þess fyrrnefnda í lok október í fyrra áréttaði Boeing-flugvélaframleiðandinn mikilvægi þess að flugmenn og flugstjórar fylgi verklagsreglum í handbókum vélanna.

Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair.Stöð 2/Sigurjón Ólason
Kínversk flugmálayfirvöld ákvaðu í nótt að kyrrsetja allar vélar þessarar tegundar í landinu og sömu ákvörðun tók flugfélagið Ethiopian Airlines. Um er að ræða níutíu þotur af um 300 sem eru í umferð en tegundin er með þeim nýjustu sem Boeing hefur framleitt. Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Icelandair segir að ekki liggi fyrir að kyrrsetja eigi flugvélar Icelandair.

„Nei, það hefur ekkert nýtt borist, hvorki frá framleiðendum né yfirvöldum hér. Það væri óeðlilegt að velta ekki fyrir sér öllum hliðum á þessu máli og það er eðlilegt að fólk spyrji sig spurninga. Við hins vegar fylgjumst mjög vel með stöðu mála, fáum allar upplýsingar um leið og þær berast og fylgjum þeim ábendingum um það,“ segir Jens.

„Þrátt fyrir að geti mögulega verið tengsl á milli þessara atburða þá er líka ýmislegt sem bendir til þess að svo sé ekki. Um leið og við færum að hafa verulegar áhyggjur þá myndum við bregðast við um leið.“

Jens segir eitthvað um að flugfarþegar hafi haft samband við þjónustuver Icelandair vegna slyssins í gær.

„Við náttúrulega reynum að skýra málið og skýra okkar afstöðu fyrir þeim viðskiptavinum sem hringja. Það hefur verið eitthvað um hringingar frá viðskiptavinum.“

Gengi flugvélaframleiðandans Boeing hafa hríðfallið í morgun og þá hefur gengi hlutabréfabréfa Icelandair í Kauphöllinni hefur lækkað um tíu prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. 

Viðskipti með bréf í félaginu nema rúmum 150 milljónum króna það sem af er degi. Hrunið má að einhverju leyti tengja flugslysinu í Eþíópíu í gær sem og tíðindum af mögulega auknu framlagi Indigo Partners í rekstur WOW air.


Tengdar fréttir

Kínverjar kyrrsetja Boeing 737 Max 8

Kínversk flugmálayfirvöld hafa ákveðið kyrrsetja Boeing 737 Max 8 þotur kínverskra flugfélaga, eftir hið mannskæða flugslys sem varð í Eþíópíu um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×