Viðskipti innlent

Advania búið að gera við bilunina

Birgir Olgeirsson skrifar
Hafði bilunin áhrif á vefi fjölda fyrirtækja og stofnana í dag.
Hafði bilunin áhrif á vefi fjölda fyrirtækja og stofnana í dag. FBL/Ernir
Fyrirtækið Advania greinir nú frá því að búið sé að gera við bilum í hýsingarumhverfi fyrirtækisins sem hefur haft áhrif á vefi fjölda fyrirtækja og stofnana í dag. 

Hafði bilunin meðal annars áhrif á vef Strætó, Ríkisskattstjóra, Knattspyrnusamband Íslands, Körfuknattleikssamband Íslands og Vísi.

Í tilkynningu frá Advania segir að bilunin hafi valdið því meðal annars að tölvukerfi viðskiptavina fyrirtækisins lágu niður um tíma en allir opinberir vefir séu nú komnir upp aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×