Handbolti

Aron hafði betur í Íslendingaslag í Meistaradeildinni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Aron Pálmarsson
Aron Pálmarsson Getty/TF-Images
Barcelona endaði á toppi A-riðils Meistaradeildar Evrópu og tryggði sig þar með beint inn í 8-liða úrslit keppninnaar en lokaumferðin fór fram í dag.

Barcelona mætti Rhein-Neckar Löwen í Íslendingaslag. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Barcelona sem vann leikinn 30-25.

Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Rhein-Neckar en Guðjón Valur Sigurðsson var ekki í hóp í dag.

Rhein-Neckar var komið örugglega inn í 16-liða úrslitin fyrir lokaumferðina en Kristianstad er hins vegar úr leik og endar á botni riðilsins eftir stórt tap fyrir Brest.

Ólafur Guðmundsson skoraði þrjú mörk, Teitur Örn Einarsson tvö og Arnar Freyr Arnarsson eitt í 32-23 tapi Kristianstad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×