Viðskipti innlent

Byggingarfélag Hótels Varmalands í 350 milljóna þrot

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Félagið hélt utan um framkvæmdir við Húsmæðraskólann á Varmalandi, sem breytt var í hótel.
Félagið hélt utan um framkvæmdir við Húsmæðraskólann á Varmalandi, sem breytt var í hótel. Vísir/Hanna
Ekkert fékkst upp í rúmlega 350 milljóna kröfur í þrotabú byggingafélagsins Lava-Hótel Varmaland, sem skömmu fyrir gjaldþrotið tók upp heitið L.H.V. ehf. Félagið hafði haldið utan um umfangsmiklar breytingar á Húsmæðraskólanum á Varmalandi, sem seldur var undir hótelstarfsemi árið 2015.

Framkvæmdir við hótelið stöðvuðust hins vegar síðastliðið sumar og var ekki framhaldið fyrr en skipt var um eigendur um haustið. Kaupandinn var Meiriháttar ehf. sem er í eigu þeirra Þóris Garðarssonar og Sigurdórs Sigurðssonar sem í dag stýra fólksflutningafyrirtækinu Gray Line, í gegnum félagið Varmaland ehf. Þórir sagði í samtali við Morgunblaðið síðasta haust að þeir Sigurdór hefðu keypt hótelið á Varmalandi af fyrirtæki Benedikts Kristinssonar, eiganda ferðaskrifstofunnar Vulkan Resor í Svíþjóð.

Meiriháttar ehf. átti 27,8 prósent hlut í hinu gjaldþrota L.H.V. á móti 72,2 prósentum Iceland Incoming ehf. Síðarnefnda félagið átti hæsta boðið í húsnæði Húsmæðraskólans árið 2015, en tilboð félagsins hljóðaði upp á 210 milljónir króna.

Félagið var jafnframt eitt þeirra sem tók þátt í fjárfestingarleið Seðlabankans, sem ætlað var að laða erlent fjármagn inn í landið og hleypa um leið aflandskrónum úr landinu. Eigendum erlends gjaldeyris var þannig gert kleift að kaupa krónur á betra verði en opinbert gengi Seðlabankans sagði til um, en krónuafslátturinn umræddi var að meðaltali í kringum tuttugu prósent. Samkvæmt úttekt Markaðarins nam þátttaka Iceland Incoming í fjárfestingarleiðinni um 718 milljónum króna.

Þrátt fyrir fyrrnefnt gjaldþrot stendur til að opna hótel Varmaland í byrjun júní. Fasteignin var seld út úr L.H.V. fyrir gjaldþrotið, auk þess sem hið nýja félag tók yfir áhvílandi veðskuldir. Skiptastjóri bús L.H.V. segir í samtalið við Fréttablaðið að kröfuhafarnir hafi einkum verið verktakar og birgjar sem komu að uppbyggingu hótelsins.


Tengdar fréttir

Milljón manns í 300 íbúa þorpi

Tvö hundruð hótelherbergi bætast við framboðið í Vík í Mýrdal þar sem þegar er hægt að hýsa eitt þúsund næturgesti að sögn sveitarstjórans. Íbúar í Vík eru þrjú hundruð. Ný stór verslunarmiðstöð er í byggingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×