Körfubolti

Mínútunum fækkar hjá LeBron James

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Frumraun LeBron James í borg englanna hefur ekki gengið vel.
Frumraun LeBron James í borg englanna hefur ekki gengið vel. vísir/getty
LeBron James og félagar hans í Los Angeles Lakers eiga lítinn mögulega á því að komast í úrslitakeppni NBA-deildinnar í körfubolta en liðið er sex og hálfum sigri frá henni þegar að 17 leikir eru eftir.

Það er meðal annars vegna þess sem að Lakers ætlar nú að hvíla LeBron aðeins út tímabilið og fækka mínútum hans sem gerir Lakers-liðið ekkert líklegra að ná takmarki sínu.

„Ég mun fylgjast með mínútum hans og vinnuframlagi út tímabilið,“ sagði Luke Walton, þjálfari LA Lakers, við ESPN í gærkvöldi en talið er nánast öruggt að Walton verði rekinn eftir tímabilið.

LeBron James hefur komist í úrslitakeppnina á hverju ári ef undan er skilið nýliðaárið hans 2003. Hann hefur níu sinnum farið í úrslitin níu sinnum, þar af átta síðustu ár og unnið NBA-titilinn í þrígang.

LeBron hefur fengið sinn skerf af gagnrýni í vetur og þá meiddist hann í fyrsta skipti alvarlega en Lakers er með 30 sigra og er búið að tapa fjórum í röð og á tta af síðustu tíu.

„Við höfum fjögur ár,“ sagði Walton eftir að LeBron skrifaði undir fjögurra ára samning við Lakers síðasta sumar. „Við viljum ekki bara að LeBron verði ferskur undir lok leiktíðar heldur að hann verði bara alltaf í góðu standi. Við erum á ferðalagi og þetta ferðalag er ekki bara ein leiktíð.“

Hinn 34 ára gamli LeBron James spilaði 31 mínútu í síðasta tapi Lakers á móti Denver Nuggets á miðvikudagskvöldið en það er um fimm mínútum minna en hann spilar að meðaltali. James er að spila að meðatali 35,6 mínútur í leik sem er það minnsta á ferli hans.

Heimildamenn ESPN telja að Lakers muni spila honum í 32 mínútur í leik þar til að tímabilið er búið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×