Innlent

Vera Einars­dóttir nýr upp­lýsinga­full­trúi fé­lags­mála­ráðu­neytisins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vera Einarsdóttir.
Vera Einarsdóttir.
Vera Einarsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi félagsmálaráðuneytisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Vera er félagsráðgjafi að mennt en hefur lengst af starfað sem blaðamaður og ritstjóri. Hún hóf störf sem blaðamaður á Fréttablaðinu árið 2007 og leiddi sérblaða- og kynningardeild blaðsins á árunum 2012 til 2017.

Þá hefur hún einnig starfað sem verktaki hjá Barnavernd Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×