Fótbolti

Neymar grét í tvo daga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar.
Neymar. Getty/Dave Winter
Brasilíumaðurinn Neymar er aðeins áhorfandi á leikjum franska liðsins Paris Saint Germain þessa dagana eftir að hafa brotið bein í fæti í lok janúar.

Neymar missir meðal annars af báðum leikjunum á móti Manchester United í Meistaradeildinni en fær samt væntanlega tækifæri til að spila fleiri leiki í Meistaradeildinni á þessu tímabili þökk sé góðri frammistöðu Parísarliðsins án hans á Old Trafford.

Neymar segist hafa grátið í tvo daga eftir að hann meiddi sig í bikarleik á móti Strasbourg. Hann braut þar framristarbein.

Neymar varð fyrir sömu meiðslum í febrúar á síðasta ári en hann var þá í kapphlaupi að ná sér góðum fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi. Það tókst en því frammistaða hans á því móti snérist þó meira um leikaraskap og væl en góðan fótbolta.

Neymar segir að þetta áfall sé „flóknara“ eins og hann kemst að orði. „Í þetta skiptið var mjög erfitt fyrir mig að sætta mig við þetta.,“ sagði Neymar í viðtali við brasilísku sjónvarpsstöðina Globo.





„Ég eyddi tveimur dögum heima grátandi,“ sagði Neymar en þetta voru allt önnur viðbrögð en fyrir ári síðan.

„Þegar ég meiddi mig í fyrra þá sagði ég: Ég fer í aðgerðina og læta laga þetta eins fljótt og hægt er. Ég var ekki leiður þá,“ sagði Neymar.

Neymar var frá í þrjá mánuði eftir meiðslin í fyrravetur en náði HM þar sem hann skoraði tvö mörk á leið Brasilíumanna í átta liða úrslitin.

Að þessu sinni fór Neymar ekki í aðgerð. Læknalið PSG ákvað að reyna frekar hófsama meðferð í stað þess að láta hann gangast undir aðra aðgerð.

Neymar á að vera frá í tíu vikur eða fram í apríl. Hann mun því líka missa af seinni leiknum á móti Manchester United í Meistaradeildinni sem fer fram á Parc des Princes 6. mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×