Viðskipti innlent

Starfsmönnum Ölgerðarinnar fækkar um 25

Birgir Olgeirsson skrifar
Starfsmönnum verður fækkað þvert á öll svið Ölgerðarinnar.
Starfsmönnum verður fækkað þvert á öll svið Ölgerðarinnar. fbl/Anton Brink
Starfsmönnum Ölgerðarinnar fækkar um 25 vegna breytinga á rekstri félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ölgerðinni en þar segir að einfalda eigi rekstur félagsins og hluta lagerstarfsemi og dreifingar verði útvistað til að takast á við vaxandi umsvif og sveigjanleika.

Auk einföldunar í rekstri verður hluta lagerstarfsemi og dreifingar útvistað og vegna þessara breytinga fækkar starfsmönnum um 25 hjá Ölgerðinni, þvert á öll svið fyrirtækisins, en hluta þeirra býðst að taka við störfum í tengslum við útvistunina.

Í tilkynningunni kemur fram að Ölgerðin verði frá og með næstu mánaðamótum alhliða drykkjarvörufyrirtæki en nánast allur annar innflutningur verður á sama tíma hjá dótturfyrirtækinu Danól.

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. FBL/Anton
Starfsemi Danól verður í framhaldi flutt í húsnæði gegnt Ölgerðinni á Fosshálsi en þessar breytingar og útvistun á lagerstarfsemi og dreifingu eiga að gera Ölgerðinni kleift að vaxa og auka enn frekar vöruþróun eigin vörumerkja.

„Starfsemi okkar hefur margfaldast á undanförnum árum og síkvikt viðskiptaumhverfi kallar á að fyrirtæki leiti allra leiða til að gera hlutina betur, auka möguleika til vaxtar, hagræða og styrkja sig enn frekar á markaði. Fyrirtæki sem fylgist ekki með breytingum og aðlagar sig ekki að nýjum aðstæðum verður í vanda og við höfum óhikað tekið ákvarðanir sem þessar til að halda okkur í fremstu röð,“ er haft eftir Andra Þór Guðmundssyni, forstjóra Ölgerðarinnar.

„Ölgerðin er og hefur verið leiðandi á sínu sviði sem afburða drykkjarvörufyrirtæki í 106 ár og með þessum breytingum verður fyrirtækinu gert kleift að styrkja enn frekar eigin framleiðslu og innflutning á drykkjarvöru. Danól verður með alla matvöru, snyrti- og sérvörur, ásamt vörum til stóreldhúsa og er óhætt að fullyrða að einfaldara skipulag mun skerpa fókusinn og losa um vaxtahömlur,“ er jafnframt haft eftir Andra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×