Handbolti

Eins marks sigur Ljónanna

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðjón Valur er á sínu síðasta tímabili með Rhein-Neckar.
Guðjón Valur er á sínu síðasta tímabili með Rhein-Neckar. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen vann eins marks sigur á Kielce í hörkuleik í Meistaradeild Evrópu í handbolta.

Heimamenn í Löwen náðu sér mest upp fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik og var staðan 18-14 í hálfleik.

Munurinn hékk í kringum þrjú mörk lengst af í seinni hálfleiknum en undir lokin tók Kielce áhlaup og minnkaði muninn í 30-29 sem urðu lokatölur.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir Rhein-Neckar og Alexander Petersson gerði þrjú. Markahæstur var Andre Schmid með tvö.

Bæði lið eru örugg áfram í 16-liða úrslit keppninnar, en þessi leikur var sá fyrsti í næst síðustu umferð riðlakeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×