Fótbolti

Valverde: Þurfum að sýna Suarez þolinmæði

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Luis Suarez þarf að finna markaskóna á ný
Luis Suarez þarf að finna markaskóna á ný vísir/getty
Ernesto Valverde hefur ekki áhyggjur af markaþurrð Luis Suarez og segir liðsmenn Barcelona sýna framherjanum þolinmæði.

Barcelona hefur aðeins skorað tvö mörk í síðustu fjórum leikjum sínum og Úrúgvæinn hefur ekki skorað í síðustu fimm leikjum.

„Luis Suarez tryggir okkur færi í hverjum einasta leik,“ sagði Valverde.

„Það er erfitt að vera án hans.“

Suarez er kominn með 16 mörk á tímabilinu en síðasta mánuðinn hefur hann aðeins skorað eitt mark.

„Það snýst alltaf allt um stóru nöfnin. Með Luis þá er forvitnilegt að síðast þegar hann fékk svona pressu á sig þá svaraði hann því með því að skora helling af mörkum.“

„Í síðustu tveimur leikjum fékk hann opin færi til þess að skora. Við þurfum að sýna þolinmæði og þrautsegju, sem er það sem hann gerir. Hann er frábær leikmaður.“

Barcelona er með sjö stiga forskot á toppi La Liga deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×