Fótbolti

Erfitt hjá Rúrik og félögum gegn Köln

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sandhausen er í fallbaráttu í B-deildinni
Sandhausen er í fallbaráttu í B-deildinni vísir/getty
Guðlaugur Victor Pálsson og Rúrik Gíslason voru báðir í byrjunarliðum liða sinna í þýsku B-deildinni í dag.

Guðlaugur Victor og félagar í Darmstadt tóku á móti Dynamo Dresden.

Tobias Kempe kom heimamönnum yfir á markamínútunnu 43. mínútu og undir lokin gulltryggði Serdar Dursun Damstadt 2-0 sigur.

Sandhausen er í bullandi fallbaráttu og þurfti að sækja stig til Köln.

Gestirnir fengu draumabyrjun þegar Andrew Wooten kom þeim yfir á fjórðu mínútu og fóru þeir með forystuna inn í hálfleikinn.

Köln skoraði hins vegar þrjú mörk í seinni hálfleik og vann 3-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×