Fótbolti

Mbappe funheitur í enn einum sigri PSG

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mbappe og félagar leyfðu sér að fagna í kvöld.
Mbappe og félagar leyfðu sér að fagna í kvöld. vísir/getty
PSG lenti ekki í miklum vandræðum með Nimes á heimavelli er liðin mættust í frönsku úrvalsdeildinni í dag en PSG vann að endingu 3-0.

Fyrsta markið skoraði hinn ungi og efnilegi Christopher Nkunku en markið skoraði hann á 40. mínútu og staðan 1-0 í hálfleik.

Síðara markið kom ekki úr óvæntri átt en þar var á ferðinni franski snillingurinn, Kylian Mbappe, en hann skoraði eftir undirbúning Juan Bernat.

Mbappe var ekki hættur því á síðustu mínútu venjulegs leiktíma var hann aftur á ferðinni með öðru marki sínu og þriðja marki PSG. Kappinn með 22 mörk í frönsku úrvalsdeildinni í vetur. Lokatölur 3-0.

PSG er á toppi deildarinnar með 68 stig, sautján stigum emira en Lille sem er í öðru sætinu og á Parísar-liðið einnig leik til góða á Lille.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×