Handbolti

Stefán Rafn markahæstur í Meistaradeildinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stefán Rafn hefur spilað frábærlega í vetur.
Stefán Rafn hefur spilað frábærlega í vetur. vísir/getty
Stefán Rafn Sigurmannsson var markahæstur hjá Pick Szeged sem tapaði 29-26 fyrir Nantes í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handbolta í kvöld.

Pick var tveimur mörkum undir í hálfleik 13-11 og náði ekki að snúa taflinu við í síðari hálfleik. Þriggja marka svekkjandi tap varð niðurstaðan.

Stefán Rafn gerði sex mörk fyrir Pick og var markahæsti leikmaður liðsins í kvöld en hann skoraði mörkin sex úr átta skotum.

Pick er í öðru sætinu í riðlinum með nítján stig og er örugglega komið áfram í 16-liða úrslitin en Nantes er í þriðja sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×