Handbolti

Tölurnar og fyrirsagnir blaðanna í sögulegum sigri Íslands í B-keppninni fyrir 30 árum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd og fyrirsögn á forsíðu DV eftir úrslitaleikinn í París
Mynd og fyrirsögn á forsíðu DV eftir úrslitaleikinn í París Skjámynd/DV
Í dag, 26. febrúar, eru liðin þrjátíu ár síðan íslenska handboltalandsliðið vann B-keppnina í Frakklandi eftir þriggja marka sigur á Póllandi í úrslitaleiknum í Bercy-íþróttahöllinni í París.

Þetta er fyrsti sigur íslenska landsliðsins á stóru móti og hápunkturinn hjá Bogdan Kowalczyk kynslóðinni sem ætlaði að toppa á Ólympíuleikunum í Seúl 1988 en uppskáru fyrir allt erfiðið sumarið 1988 með því að blómsta í b-keppninni í Frakklandi í febrúar 1989.

Það er mjög athyglisvert að skora markaskor íslenska landsliðsins í þessari sögulegu keppni en það er óhætt að segja að það hafi dreifst á margar hendur.

Átta leikmenn liðsins skoruðu nefnilega á bilinu 2,5 mörk til 3,7 mörk í leik og það munaði samtals bara ellefu mörkum á markahæsta manni liðsins og mannsins í sjöunda sæti.

Sex mismundandi leikmenn náðu að vera markahæstir hjá íslenska liðinu í leik á mótinu eða þeir Héðinn Gilsson, Þorgils Óttar Mathiesen, Jakob Sigurðsson (tvisvar), Alfreð Gíslason (tvisvar), Sigurður Valur Sveinsson og Valdimar Grímsson.

Kristján Arason var markahæstur í íslenska liðinu á mótinu með 26 mörk í sjö leikjum eða 3,7 mörk að meðatali í leik.

Alfreð Gíslason skoraði 23 mörk og Þorgils Óttar Mathiesen var með 22 mörk. Sigurður Valur Sveinsson skoraði 20 mörk en þó bara í sex leikjum því hann missti af einum leik.

Sigurður Valur Sveinsson og Bjarki Sigurðsson skoruðu báðir 3,3 mörk í leik og voru saman í 2. sæti yfir flest mörk að meðaltali. Bjarki spilaði fyrstu tvo leikina en síðan ekki aftur fyrr en í úrslitaleiknum eftir að hafa meiðst.

Hér fyrir neðan má sjá markaskor íslenska landsliðsins í sjö leikjum liðsins í B-keppninni í Frakklandi 1989. Þar má einnig sjá fyrirsagnir úr íslensku blöðunum eftir þennan sögulega sigur.





Forsíða íþróttakálfs DV eftir úrslitaleikinn.Skjámynd/DV


Meðalskor leikmanna íslenska landsliðsins í B-keppninni 1989:


1. Kristján Arason    3,7 mörk í leik

2. Bjarki Sigurðsson    3,3

2. Sigurður Valur Sveinsson    3,3

4. Alfreð Gíslason    3,3

5. Valdimar Grímsson    3,2

6. Þorgils Óttar Mathiesen    3,1

7. Jakob Sigurðsson    2,7

8. Héðinn Gilsson    2,5

9. Sigurður Gunnarsson    1,9

10. Guðmundur Guðmundsson    1,5

Frétt Tímans um úrslitaleikinn.Skjámynd/Tíminn


Flest mörk leikmanna íslenska landsliðsins í B-keppninni 1989:

1. Kristján Arason    26 mörk

2. Alfreð Gíslason    23

3. Þorgils Óttar Mathiesen    22

4. Sigurður Valur Sveinsson    20

5. Jakob Sigurðsson    19

6. Valdimar Grímsson    16

7. Héðinn Gilsson    15

8. Sigurður G Gunnarsson    13

9. Bjarki Sigurðsson    10

10. Guðmundur Þórður Guðmundsson    9

Frétt um úrslitaleikinn í DV.Skjámynd/DV
Leikir íslenska liðsins í B-keppninni 1989 og markahæstu menn í hverjum leik:

Mið. 15.feb.1989 í Cherbourg: 20-12 sigur á Búlgaríu

(Héðinn Gilsson 5, Þorgils Óttar Mathiesen 5, Kristján Arason 4, Bjarki Sigurðsson 3)

Fim. 16.feb.1989 í Cherbourg: 33-14 sigur á Kúveit

(Jakob Óskar Sigurðsson 9, Sigurður Gunnarsson 6, Valdimar Grímsson 4)

Lau. 18.feb.1989 í Cherbourg: 21-23 tap fyrir Rúmeníu

(Alfreð Gíslason 9, Kristján Arason 5, Valdimar Grímsson 3)

Mán. 20.feb.1989 í Strasbourg: 23-21 sigur á Vestur-Þýskalandi

(Sigurður Valur Sveinsson 9, Guðmundur Guðmundsson 4, Héðinn Gilsson 3, Alfreð Gíslason 3)

Þri. 21.feb.1989 í Strasbourg: 19-18 sigur á Sviss

(Valdimar Grímsson 6, Guðmundur Guðmundsson 3, Kristján Arason 3, Þorgils Óttar Mathiesen 3)

Fim. 23.feb.1989 í Strasbourg: 31-17 sigur á Hollandi

(Jakob Óskar Sigurðsson 8, Þorgils Óttar Mathiesen 6, Héðinn Gilsson 5)

Sun. 26.feb.1989 í París: 29-26 sigur á Póllandi

(Alfreð Gíslason 7, Kristján Arason 6, Þorgils Óttar Mathiesen 5)

Baksíða Morgunblaðsins.Skjámynd/Morgunblaðið
Frétt Þjóðviljans um úrslitaleikinn.Skjámynd/Þjóðviljinn
Alfreð Gíslason var valinn besti leikmaður B-keppninnar. Hér er hann í viðtali við DV eftir sigurinn.Skjámynd/DV
Bogdan Kowalczyk stýrði íslenska landsliðinu frá 1984 til 1990. Hér er honum hrósað í DV eftir leikinn.Skjámynd/DV



Fleiri fréttir

Sjá meira


×