Innlent

Ætla að fjölgeislamæla gjána til að staðsetja bílinn

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá aðgerðum við Ölfusá.
Frá aðgerðum við Ölfusá. Vísir/Jói K.
Ákveðið hefur verið að gera tilraun til fjölgeislamælinga á dýpt og lögun gjárinnar neðan við Ölfusárbrú með það í huga að staðsetja ökutæki í gjánni. Um er að ræða bifreið sem fór í Ölfusá síðastliðið mánudagskvöld. Björgunarsveitarmenn leita enn að ökumanni bílsins, Páli Mar Guðjónssyni, en farið var á bátum á Ölfusá í dag og verður sama lag haft við á morgun en áformað er að fínkemba svæðið um komandi helgi. Þá munu Landhelgisgæslumenn fljúga þyrlu yfir leitarsvæðið á eftirlitsferðum sínum óháð öðrum leitaraðgerðum.

Lögregla og svæðisstjórn fundaði í dag með fulltrúum straumvatnsbjörgunarhóps Björgunarfélags Árborgar, kafara Sérsveitar ríkislögreglustjóra, kafara Landhelgisgæslu, fulltrúum Brunavarna Árnessýslu og fulltrúum Kranaþjónustu JÁVERK sem á Selfossi.

Á fundinum var ákveðið að gera tilraun til fjölgeislamælinga á dýpt og lögun gjárinnar neðan við Ölfusárbrú með það í huga að staðsetja ökutækið í gjánni. Aðgerð sem þessi hefur ekki verið reynd áður í gjánni en nokkuð gott yfirlit yfir dýpt hennar með punktmælingum er til.

Aðgerðin þarfnast nokkurs undirbúnings og þarf að fara saman að veðurfarslegar aðstæður séu góðar og hæfilegt rennsli í ánni. Við fyrstu skoðun sýnist mönnum að mögulegt verði að gera þetta um miðja næstu viku gangi veðurspá eftir hvað varðar hitastig og úrkomu.

Framhald aðgerða neðan við brúna byggir á því hvaða árangur næst með þessum mælingum en fyrir liggur að lögregla mun ekki heimila köfun í gjánni vegna þeirrar áhættu sem í henni fælist. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×