Innlent

Bíl blaðamanns stolið í skjóli nætur í Garðabæ

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bíll Gunnþórunnar sem stolið var í nótt.
Bíll Gunnþórunnar sem stolið var í nótt. Gunnþórunn
Gunnþórunn Jónsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, segir að bíl fjölskyldunnar hafi verið stolið í nótt. Svo virðist sem einhver hafi farið inn á heimili hennar og fjölskyldunnar í Garðabæ, tekið bíllyklana og ekið á brott. Um er að ræða svarta Mercedes Benz bifreið með bílnúmerinu KO021 sem stóð fyrir utan húsið.

Gunnþórunn deilir mynd af bílnum og upplýsingum á Facebook í þeirri von að bíllinn finnist.

„Útidyrahurðin var opin þegar við vöknuðum í morgun þrátt fyrir að vera í lás og lyklarnir farnir. Það er óhugnalegt að vita til þess að mögulega hafi einhver verið á sveimi inni á heimilinu meðan allir sváfu,“ segir Gunnþórunn.

Þó virðist ekkert hafa verið tekið innandyra en það muni koma betur í ljós.

„Þetta er allt hið undarlegasta mál. Mér þætti afskaplega vænt um ef þið gætuð hjálpað okkur við leit að bílnum með því að hafa augun opin og einnig deila þessum status útum allt. Þetta er eitt það allra óþægilegasta sem maður lendir í. Bílnúmerið er KO021. Ástarþakkir!“

Nokkuð hefur verið um bílaþjófnað undanfarið. Til dæmis var Land Rover jeppa almannatengils stolið í Þingholtunum í janúar. Hann fannst degi síðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×