Fótbolti

Sjáðu upprúllun Tottenham og markið sem VAR tók af Ajax

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Tottenham valtaði yfir Dortmund í seinni hálfleik
Tottenham valtaði yfir Dortmund í seinni hálfleik vísir/getty
Tottenham er í mjög vænlegri stöðu í Meistaradeild Evrópu eftir 3-0 sigur á Dortmund á Wembley. Real Madrid slapp með skrekkinn gegn Ajax í Hollandi.

Tottenham átti frábæran seinni hálfleik á Wembley þar sem þeir hvítklæddu upprúlluðu Dortmund. Son Heung-min, Jan Vertonghen og Fernando Llorente skoruðu mörk Tottenham.

Í Hollandi voru heimamenn mun betri aðilinn gegn Evrópumeisturum Real Madrid í fyrri hálfleik. Þeir uppskáru mark sem eftir langan umhugsunartíma var dæmt af með hjálp myndbandsdómgæslu.

Karim Benzema og Hakim Ziyech skoruðu sitt hvort markið fyrir lið sín í seinni hálfleik áður en Marco Asensio tryggði Real sigurinn undir lok leiksins.

Öll mörkin má sjá í spilurunum hér að neðan.

Ajax - Real Madrid 1-2
Klippa: Ajax - Real Madrid 1-2
Tottenham - Borussia Dortmund 3-0
Klippa: Tottenham - Borussia Dortmund 3-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×