Erlent

Þrettán fórust í rútuslysi í Norður-Makedóníu

Atli Ísleifsson skrifar
Farþegar í rútunni voru verkamenn á leið til heimaborgar sinnar, Gostivar, þegar slysið varð.
Farþegar í rútunni voru verkamenn á leið til heimaborgar sinnar, Gostivar, þegar slysið varð. EPA/FROSINA NASKOVIC
Þrettán eru látnir og fjöldi alvarlega slasaður eftir rútuslys í Norður-Makedóníu í gær. Alls voru í kringum fimmtíu manns í rútunni sem hafnaði utan vegar.

Venko Filipce, heilbrigðisráðherra Norður-Makedóníu, segir í samtali við AFP að fjöldi látinna kunni að hækka. Slysið varð í þorpinu Laskarci, um tuttugu kílómetrum vestur af höfuðborginni Skopje. Barnshafandi kona á að vera í hópi hinna slösuðu.

Rútubílstjórinn missti stjórn á rútunni þannig að hún hrapaði um tíu metra niður hlíð og hafnaði á hvolfi.

Deutsche Welle segir frá því að allir farþegarnir í rútunni hafi verið verkamenn á leið til heimabörgar sinnar Gostivar og hefur forsætisráðherrann Zoran Zaev lýst yfir tveggja daga þjóðarsorg vegna málsins.

Stjórnvöld í Makedóníu breyttu nafni landsins í Norður-Makedóníu á þriðjudag, eftir áratugalangar deilur landsins við Grikki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×