Handbolti

Níu mörk frá Rúnari í Íslendingaslag

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rúnar lét mikið finna fyrir sér í dag
Rúnar lét mikið finna fyrir sér í dag vísir/daníe
Rúnar Kárason fór mikinn í sigri Ribe-Esbjerg á Sönderjyske í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Rúnar skoraði 9 mörk og var markahæstur á vellinum, liðsfélagi hans Lukas Karlsson fylgdi skammt á eftir með átta mörk. Gunnar Steinn Jónsson var með tvö mörk í 29-27 sigrinum.

Í liði heimamanna í Sönderjyske var Arnar Birkir Hálfdánsson með sjö mörk og komu flest þeirra undir lokin þegar Sönderjyske gerði áhlaup eftir að hafa verið átta mörkum undir um miðjan seinni hálfleik.

Í þýsku Bundesligunni höfðu Íslendingarnir hægar um sig. Alexander Petersson skoraði tvö mörk í 31-26 útisigri Rhein-Neckar Löwen á Minden. Guðjón Valur Sigurðsson kom líklega ekkert við sögu í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×