Fótbolti

Sarri: Ekki auðvelt að mæta með svona sjálfstraust eftir síðasta leik

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Maurizio Sarri var sáttur með sjálfstraustið sem hans menn í Chelsea sýndu gegn Malmö í Evrópudeildinni í kvöld.

Chelsea vann leikinn 2-1. Anders Christiansen skoraði sárabótamark fyrir Malmö undir lokin en Chelsea var með yfirhöndina allan leikinn.

„Við spiluðum vel á móti liði sem er mjög líkamlega sterkt. Við vorum aðeins hræddir við þá í föstum leikatriðum,“ sagði Ítalinn eftir leikinn.

„Við stýrðum leiknum og áttum skilið að vinna með meiri mun.“

„Ég er mjög ánægður með sjálfstraustið sem við sýndum og það var alls ekki auðvelt eftir síðasta leik,“ sagði Sarri en Chelsea fékk niðurlægingu gegn Manchester City um síðustu helgi.

„Við fengum á okkur mark eftir mistök undir lokin, það getur gerst en ég var mjög ánægður með einbeitinguna sem við héldum út í 90 mínútur.“

„Við vitum samt að við þurfum að vinna næsta leik til þess að tryggja okkur áfram,“ sagði Sarri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×