Fótbolti

Valverde framlengdi við Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Valverde er ánægður hjá Barcelona.
Valverde er ánægður hjá Barcelona. vísir/getty
Það er ánægja í herbúðum Barcelona með störf þjálfara félagsins, Ernesto Valverde, og hann hefur verið verðlaunaður með nýjum samningi.

Nýi samningur hins 55 ára gamla Valverde við Barcelona er reyndar aðeins til eins árs en þó með möguleika á árs framlengingu í viðbót. Hann gæti því verið hjá félaginu fram á sumar 2021.

Hann tók við liðinu af Luis Enrique í maí árið 2017 og vann spænsku deildina og bikarinn á sínu fyrsta tímabili með liðið.

Barca er í toppmálum á toppi spænsku deildarinnar núna sem og í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Samningur Valverde átti að renna út næsta sumar. Han hefur unnið 65 af þeim 96 leikjum þar sem hann hefur stýrt liði Barcelona. Aðeins níu sinnum hefur liðið tapað undir hans stjórn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×