Fótbolti

Griezmann með sigurmarkið í sigri Atletico

Smári Jökull Jónsson skrifar
Antoine Griezmann á ferðinni í leiknum í dag.
Antoine Griezmann á ferðinni í leiknum í dag.
Atletico Madrid vann mikilvægan sigur á Rayo Vallecano í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Atletico er í þriðja sæti deildarinnar, einu stigi á eftir nágrönnum sínum í Real en sjö stigum á eftir Barcelona sem eru í toppsætinu.

Vallecano var í fallsæti fyrir leikinn í dag og því búist við sigri gestanna. Hann var þó torsóttur og það voru heimamenn í Vallecano sem áttu mun fleiri tilraunir að marki í dag.

En Atletico Madrid er með Antoine Griezmann í sínum röðum. Hann skoraði eina mark leiksins á 74.mínútu og tryggði Atletico mikilvæg þrjú stig.

Barcelona getur aukið muninn á nýjan leik í kvöld þegar þeir fá Real Valladolid í heimsókn. Real Madrid leikur við Girona á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×