Körfubolti

Tróð yfir Shaq til að tryggja sigurinn í troðslukeppninni

Arnar Geir Halldórsson skrifar
vísir/getty
Nýliðinn Hamidou Diallo kom, sá og sigraði í troðslukeppni NBA deildarinnar sem fram fór í nótt sem hluti af stjörnuleikshelginni vestanhafs en henni lýkur svo með sjálfum stjörnuleiknum í kvöld.

Diallo, sem leikur fyrir Oklahoma City Thunder, hafði betur eftir harða keppni við Dennis Smith Jr., leikmann New York Knicks en þó má segja að sigur Diallo hafi verið verðskuldaður þar sem hann átti án nokkurs vafa troðslu kvöldsins.

Þessi tvítugi bakvörður gerði sér nefnilega lítið fyrir og stökk yfir tröllið Shaquille O´Neal áður en hann tróð boltanum af krafti í körfuna að hætti Vince Carter og fagnaði svo með því að rífa treyjuna þar sem hann var í Superman búning innan undir.

Sömuleiðis fór þriggja stiga keppnin fram í gær en þar urðu óvænt úrslit þar sem framherji Brooklyn Nets, Joe Harris, hafði betur gegn Stephen Curry. Þá stóð Jayson Tatum, Boston Celtics, uppi sem sigurvegari í hæfileikakeppni (e. skills contest) þar sem hann hafði betur gegn Trae Young í úrslitum.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×