Innlent

Röktu slóð vopnaðs ræningja í nýföllnum snjó á Akureyri

Birgir Olgeirsson skrifar
Maðurinn ógnaði tveimur starfsmönnum kjörbúðar með hnífi.
Maðurinn ógnaði tveimur starfsmönnum kjörbúðar með hnífi. Vísir/Tryggvi
Rán var framið í kjörbúð á Akureyri á sjöunda tímanum í morgun. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá þessu en í tilkynningunni segir að karlmaður á þrítugsaldri ógnaði tveimur starfsmönnum með hnífi og krafðist þess að fá afhenta peninga úr sjóðsvélum.

Þegar hann hafði fengið peningana hljóp hann á brott frá versluninni.

Lögreglumenn á Akureyri fengu veður af ráninu meðan það var yfirstandandi og gátu brugðist skjótt við. Unnt var að rekja ferðir mannsins í nýföllnum snjó og ganga að honum þar sem hann hafði falið sig.

Maðurinn veitti ekki mótspyrnu við handtökuna en er talinn hafa verið undir áhrifum bæði áfengis og fíkniefna.

Hann er vistaður í fangageymslu meðan af honum rennur víman og unnt verður að yfirheyra hann. Peningaupphæðin sem hann rændi er óveruleg. Rannsókn málsins miðar vel og starfsmönnum verslunarinnar var boðin áfallahjálp.

Ekki er talið að maðurinn hafi átt sér vitorðsmenn. Ákvörðun um hvort gerð verður krafa um gæsluvarðhald, bíður kvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×