Viðskipti erlent

Zuckerberg og Facebook fá á baukinn í nýrri breskri skýrslu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Mark Zuckerberg kom fyrir Bandaríkjaþing í fyrra vegna hneykslismála.
Mark Zuckerberg kom fyrir Bandaríkjaþing í fyrra vegna hneykslismála. Vísir/Getty
Facebook og stofnandi þess, Mark Zuckerberg, fá á baukinn í lokaútgáfu skýrslu breskrar þingnefndar vegna rannsóknar hennar á falsfréttum og hlutverki samfélagsmiðla í dreifingu á þeim. Facebook braut lög og mikil þörf er á að búa til regluverk sem tekur á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum að mati nefndarinnar.

Nefndin hóf rannsóknina árið 2017 en aukinn kraftur var lagður í hana á síðasta ári vegna Cambridge Analytica-skandalsins svokallaða eftir að kom í ljós að gögn um milljónir notenda Facebook voru misnotuð í pólitíska þágu.

Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að á undanförnum árum hafi Facebook brotið persónuverndar- og samkeppnislög og koma hefði mátt í veg fyrir Cambridge Analytica-skandalinn hefði Facebook farið eftir skilmálum sáttar fyrirtækisins við samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum árið 2011, þar sem kveðið var á um að takmarka ætti aðgang að upplýsingum um notendur Facebook.

Hagnaður hluthafa ofar persónuvernd notenda

Í hinni 108 blaðsíðna löngu skýrslu er Facebook sakað um að setja hagnað hluthafa ofar persónuvernd notenda samfélagsmiðilsins. Skýrslan er harðorð í garð Facebook.

„Facebook velur hagnað fram yfir gagnaöryggi. Það tekur áhættu til þess að forgangsraða því að græða peninga á gögnum notendans,“ segir í skýrslunni. 

Þá eru viðbrögð Facebook við gagnrýnisröddum harðlega gagnrýndar.

„Það virðist vera ljóst að Facebook bregst aðeins við þegar alvarlegir brestir eru gerðir opinberir,“ segir í skýrslunni.

Þingmaðurinn Damian Collins er formaður nefndarinnar.Getty/Chris Somodevilla

Zuckerberg skorti leiðtogahæfni

Þá fær Zuckerberg einnig að heyra það en hann hafnaði í þrígang boði nefndarinnar um að ræða við hana vegna málsins. Í skýrslunni kemur fram að sú staðhæfing hans um að Facebook hafi aldrei selt gögn notenda sinna „sé einfaldlega ósönn“.

„Mark Zuckerberg bregst ævinlega þegar kemur að því að sýna leiðtogahæfni eða ábyrgð sem búast má við að sá sem stýri einu heimsins stærsta fyrirtæki búi yfir,“ sagði í yfirýsingu Damian Collins, formanns nefndarinnar.

Meðal annars er lagt til að settar verði upp siðareglur sem tæknifyrirtækjum sé skylt að fylgja, og að sjálfstæður eftirlitsaðili fylgist með því hvort að fyrirtækin fari eftir reglunum. Þá er lagt til að Facebook og öðrum samfélagsmiðlum verði gert skylt að fjarlægja hættulegt efni, þar á meðal falsfréttir, auk marvíslegra annarra tillagna.

Nánar má lesa um skýrsluna á vef BBC og Guardian.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×