Viðskipti innlent

Sigurður Gísli ráðinn til Opinna kerfa

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sigurður Gísli Karlsson.
Sigurður Gísli Karlsson. Mynd/OPin kerfi
Sigurður Gísli Karlsson hefur verið ráðinn stjórnendaráðgjafi hjá Opnum kerfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Í tilkynningu segir að Sigurður Gísli hafi fjölbreytta reynslu af ráðgjafastörfum, nýsköpun, framleiðslu og vöruþróun. Áður en Sigurður hóf störf hjá Opnum kerfum var hann yfirmaður vélahönnunar hjá Völku og þar áður starfaði hann sem verkfræðingur í þróunardeild Össurar á árunum 2007-2015. Sigurður starfaði einnig hjá Heklu hf., Brimborg hf. og Glostrup Truck Service A/S í Danmörku. Sigurður Gísli er með MBA frá Copenhagen Business School, MS og BS í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands, einnig stundaði hann skiptinám við University of Aukland í meistaranámi í vélaverkfræði.

„Viðskipta- og rekstrarumhverfi fyrirtækja og stofnana er að breytast hratt í takt við tækniframfarir, væntingar og þarfir neytenda. Auk stafrænna lausna þurfa fyrirtæki ráðgjöf og stuðning til að nýta þessa nýju tækni til uppbyggingar á sinni starfsemi til þess að geta fylgt eftir þessum hröðu breytingum á markaði. Þannig vinnum við með fyrirtækjum að greina tækifæri á markaði til efla viðskiptmódel þeirra,“ er m.a. haft eftir Sigurði Gísla í tilkynningu.

Þá er haft eftir Sigurgísla Melberg, framkvæmdastjóra hjá Opnum kerfum, að mikill fengur sé af Sigurði Gísla.

„Kostnaður við rekstur upplýsingakerfa og nýtingu stafrænna lausna er sífellt að aukast, því skiptir sköpum fyrir fyrirtæki og stofnanir að ná hámarksarðsemi úr kerfum og vélbúnaði, jafnframt þurfa áætlanir í þessum efnum að vera markvissar og raunhæfar,“ segir Sigurgísli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×