Innlent

Sakar Jón Baldvin um lygar

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Frænka eiginkona Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi ráðherra og sendiherra sakar hann um lygar.
Frænka eiginkona Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi ráðherra og sendiherra sakar hann um lygar. Vísir/Vilhelm

Frásagnir tuttugu og þriggja ónafnfgreindra kvenna um kynferðisbrot og áreiti Jóns Baldvins Hannibalssonar koma fram á bloggsíðu sem birtist í morgun. Hann neitar að hafa beitt kynferðislegri misbeitingu og segir um róg og níð að ræða. Talskona hópsins segir hann ljúga.



í janúar hófu að birtast frásagnir kvenna um kynferðisbrot Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi ráðherra og sendiherra á Facebook. Í morgun opnaði bloggsíða með 23 nafnlausum sögum þolenda af kynferðisbrotum og áreitni af hans hálfu sem ná yfir nær 60 ár. 



Konurnar kenna sig við Metoo-byltinguna og segja að tilgangurinn sé að frelsa sig frá þeirri þjáningu sem samskipti við hann hafi valdið í áratugi. 



Í fréttum okkar í gær neitaði Jón Baldvin að hafa áreitt konur kynferðislega.



„Vitandi vits hef ég aldrei káfað, þuklað klipið eða sýnt konum óvirðingu í orði, þvert á móti,“ segir Jón Baldvin.

Guðrún Harðardóttir segir Jón Baldvin ljúga.vísir/aðsend

Guðrún Harðardóttir, systurdóttir Bryndísar Schram, eiginkonu Jóns, er ein af talskonum Metoo-hópsins. Hún segir hann ljúga. 



„Maðurinn lýgur, það er bara þannig. Ég meina, við erum 23 konur sem höfum allar upplifað að hann sé annað hvort að káfa á okkur, troða tungunni upp í okkur, horfa á okkur sofandi, segja við okkur að hann vilji sofa hjá okkur frá því við erum tíu ára þangað til við erum 18 ára,“ segir Guðrún. 



Jón segir að hann komi aðeins til með að svara ásökunum þeirra sem komi fram undir nafni.



„Ef einhver ber þig svívirðilegum sökum á netinu eða í fjölmiðlum hvernig er hægt að svara ef þú veist ekkert hver það er. Þetta voru kallaðar gróusögur í gamla daga og er rógur og níð. Ég skora á þetta fólk að koma fram undir nafni og standa þá fyrir máli sínu í réttarkerfi Íslands,“ segir Jón Baldvin. 



Guðrún segir að ekki hafi komið til greina að birta nöfn þeirra kvenna sem um ræðir.



„Nei, vegna þess að vanalega beinist öll athyglin að þolendum og umræðan fer þá að snúast um trúðverugleika þeirra. Við vildum beina umræðunni að Jóni Baldvini en ekki okkur,“  segir Guðrún. 



Jón Baldvin hefur sagt að um sé að ræða hóp í kringum dóttur hans og telur að verið sé reyna að koma í veg fyrir bókaútgáfu og málþing í tilefni af áttræðis afmæli hans. Þessu neitar Guðrún. 



„Þetta eru þvílíkar samsæriskenningar að þetta sé einhver hópur öfgafemínisma sem sé að reyna að klekkja á honum. Sögurnar eru bara það margar og sýna ákveðin mynstur sem er bara ekki hægt að skálda,“ segir Guðrún Harðardóttir.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×