Menning

Einar Kárason úti í kuldanum við úthlutun listamannalauna

Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Þórarinn Þórarinsson skrifar
Einar Kárason á að baki 40 ára farsælan rithöfundarferil en fær ekki krónu í listamannalaun. Fréttablaðið/Anton Brink
Einar Kárason á að baki 40 ára farsælan rithöfundarferil en fær ekki krónu í listamannalaun. Fréttablaðið/Anton Brink
„Ég er ekki búinn að fá neitt. Hef ekkert bréf fengið eða neitt. Er ég bara ekki á listanum?“ segir Einar Kára­son rit­höfundur við frettabladid.is að­spurður um við­brögð sín við að hafa ekki fengið út­hlutað úr launa­sjóði lista­manna.

Kunngert var í gær hverjir fengju listamannalaun úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðunum úthlutunarnefnda Launasjóðs listamanna. Alls bárust 890 umsóknir um starfslaun frá einstaklingum og hópum. Starfslaun listamanna eru 392.498 krónur á mánuði samkvæmt fjárlögum.

Meðal þjóðþekktra rithöfunda sem ekki fá listamannalaun eru Einar Kárason, Hallgrímur Helgason og Auður Ava Ólafsdóttir. Hallgrímur kveðst hafa dregið umsókn sína til baka þar sem hann seldi vel fyrir jólin og Auður Ava Ólafsdóttir gerði slíkt hið sama eftir að hafa unnið til bókmenntaverðlauna Norðurlandanna.

Öðru máli gegnir um Einar Kárason sem sækir um ár­lega. Hann fékk laun til sex mánaða á síðasta ári og níu mánuði þar á undan.

„Ég á ekki til orð. Hvaða djöfulsins rugl er þetta,“ segir Einar. „Þetta er bara mjög skrítið. Í rauninni finnst mér að í öllum öðrum starfs­greinum hefði mönnum nú bara verið boðinn starfs­loka­samningur eða eitt­hvað. Ég er búinn að hafa at­vinnu af þessu í fjöru­tíu ár, og þetta er það eina sem ég lifi á. Þetta er furðu­legt,“ segir hann.

Þórunn Jarla Valdimarsdóttir upplýsti á Facebook í gær að hún fengi listamannalaun í níu mánuði að þessu sinni en ekki tólf „eins og venjulega“, og veltir fyrir sér hvort verið sé að refsa henni fyrir góða sölu. Þessi niðurstaða ýti henni yfir í fræðimennsku hluta úr árinu svo hún megi sækja þá þrjá mánuði sem upp á vantar í slíka sjóði.

Valur Gunnarsson fer bónleiður til búðar eina ferðina enn og sagði á Facebook: „Engin ritlaun í ár heldur. Spariféð þurrkaðist út í gengishruni haustsins. Ef LÍN bregst mér endanlega fer ástandið að verða ansi tvísýnt.“

Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, var einnig dapur í bragði á Twitter þar sem hann sagðist vera í vinnu núna en ef hann efist um sjálfan sig muni allt hrynja. „Því var ekki gaman að láta synja sér um ritlaun,“ tísti hann.

Það eru ekki aðeins rithöfundar sem fá listamannalaun. Þau eru einnig veitt myndlistarmönnum, tónskáldum, tónlistarflytjendum, hönnuðum og sviðslistafólki og -hópum. Listamannalaun eru veitt frá einum mánuði upp í allt að átján í tilviki Hrafnhildar Arnardóttur myndlistarmanns.

Alls voru umsækjendur 1.543 og sóttu um samtals sextán hundruð mánaðarlaun. Af þeim fengu 358 listamannalaun. Heildarlista yfir úthlutunina og nánari umfjöllun er að finna á frettabladid.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×