Enski boltinn

Sjáðu sigurmark Salah, glæsimark Willian og öll hin mörkin úr leikjum gærdagsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Salah fagnar sigurmarkinu í gær. Mikilvægur sigur.
Salah fagnar sigurmarkinu í gær. Mikilvægur sigur. vísir/getty
Það var nóg um að vera í enska boltanum í gær er úrvalsdeildin fór aftur af stað eftir að hafa verið í fríi um síðustu helgi.

Fimmtán mörk voru skoruð í leikjunum sjö sem fóru fram í gær er 22. umferðin fór af stað en tveir leikir fara svo fram í dag. Umferðinni lýkur svo annað kvöld.

Chelsea vann mikilvægan sigur á heimavelli gegn Newcastle en Arsenal tapaði mikilvægum stigum í grannaslag gegn West Ham. Liverpool marði sigur á Brighton á útivelli.

Jóhann Berg Guðmundsson var ekki með Burnley sem vann mikilvægan sigur í fallbaráttunni en Aron Einar Gunnarsson spilaði allan tímann er Cardiff gerði markalaust jafntefli við Huddersfield.

Öll mörkin úr leikjum gærdagsins má sjá hér að neðan.

Úrslit gærdagsins:

West Ham - Arsenal 1-0

Brighton - Liverpool 0-1

Burnley - Fulham 2-1

Cardiff - Huddersfield 0-0

Crystal Palace - Watford

Leicester - Southampton 1-2

Chelsea - Newcastle 2-1

Crystal Palace - Watford 1-2:
Klippa: FT Crystal Palace 1 - 2 Watford
Burnley - Fulham 2-1:
Klippa: FT Burnley 2 - 1 Fulham
West Ham - Arsenal 1-0:
Klippa: FT West Ham 1 - 0 Arsenal
Chelsea - Newcastle 2-1:
Klippa: FT Chelsea 2 - 1 Newcastle
Brighton - Liverpool 0-1:
Klippa: FT Brighton 0 - 1 Liverpool
Leicester - Southampton 1-2:
Klippa: FT Leicester 1 - 2 Southampton

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×