Erlent

Nóbelsverðlaunahafi gagnrýndur í annað sinn fyrir ummæli um gáfur svartra

Andri Eysteinsson skrifar
Watson segist útskúfaður frá fræðasamfélaginu vegna ummæla hans.
Watson segist útskúfaður frá fræðasamfélaginu vegna ummæla hans. EPA/Jose Mendez
Bandaríski vísindamaðurinn James Watson, sem vann til Nóbelsverðlauna í Læknisfræði vegna rannsókna sinna á byggingu DNA ásamt félögum sínum Maurice Wilkins og Francis Crick, hefur verið gagnrýndur vegna ummæla sinna um kynþætti og hefur verið sviptur heiðurstitlum sem Cold Spring Harbor rannsóknarstofnunin hefur veitt honum. BBC greinir frá.

Watson hafði haldið því fram í þætti PBS sjónvarpsstöðvarinnar að svartir væru ekki eins gáfaðir og hvítir. Watson sagði að mismunandi gen í svörtum og hvítum gerðu það að verkum að hvítir skora hærra en svartir á greindarvísitöluprófum.

Cold Spring Harbor stofnunin hefur sagt ummæli hins níutíu ára Watson vera órökstudd og glæfraleg. Stofnunin svipti Watson í kjölfarið titlum sínum. Watson hafði verið í stjórnunarstöðum í stofnuninni til ársins 2007 en þá varð einnig uppi fótur og fit vegna skoðana hans á kynþáttum.

Árið 2007 sagðist Watson hafa áhyggjur af framtíð Afríku. Allar samfélagsreglur vestræns samfélags byggju á því að gáfnafar „þeirra“ væri hið sama og „okkar“. Watson sagði þó að rannsóknir bentu til annars og bætti við því að fólk sem hefði kynnst svörtu starfsfólki myndi taka undir með honum. Eftir að Watson lét þessi ummæli falla var hann rekinn úr stjórnunarstöðum sínum.

Watson var gagnrýninn á vísindasamfélagið eftir þetta en hann seldi Nóbelsverðlaunapening sinn árið 2014 og sagði fræðasamfélagið hafa útskúfað hann eftir ummæli hans.

Watson hlaut eins og áður sagði Nóbelsverðlaun árið 1962 fyrir rannsóknir á DNA. Watson vann með Francis Crick í rannsóknum sínum en þriðji aðilinn sem fékk Nóbelsverðlaunin var Maurice Wilkins. Wilkins hafði unnið náið með vísindakonunni Rosalind Franklin. Franklin sem var mikilvægur hlekkur í rannsóknunum lést árið 1958, fjórum árum áður en Nóbelsverðlaunin voru veitt þeim Watson, Wilkins og Crick.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×