Erlent

Í­búar Gdansk hvattir til að gefa borgar­stjóranum blóð

Atli Ísleifsson skrifar
Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum.
Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum. Getty
Íbúar í pólsku borginni Gdansk hafa verið hvattir til að gefa blóð eftir að borgarstjóri borgarinnar til margra ára var stunginn með hníf á góðgerðarsamkomu í gær. Ástand borgarstjórans, Pawel Adamowicz, er sagt mjög alvarlegt.

Adamowicz, sem hefur gegnt borgarstjóraembættinu í tuttugu ár, er sagður hafa verið stunginn með hníf í hjartað og maga af 27 ára karlmanni. Gekkst hann undir fimm tíma aðgerð í nótt og sagði einn skurðlæknanna í morgun að hann sé með mikla innri áverka og þurfi á mikilli blóðgjöf að halda. Blóðgjafar í borginni hafa verið hvattir til að gefa blóð.

Síðar í dag fer fram samkoma þar sem beiting ofbeldis verður mótmælt.

Handtekinn á staðnum

Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum. Hann hefur áður afplánað dóm vegna afbrots sem hann kveðst saklaus af og kennir hann fyrrverandi stjórnmálaflokki borgarstjórans um málið. Borgarstjórinn var stunginn þar sem hann stóð á sviði á góðgerðarsamkomu í gær.

„Halló! Halló! Ég heiti Stefan. Ég var fangelsaður en er saklaus. [Stjórnmálaflokkurinn] Borgaravettvangur pyndaði mig, þess vegna er Adamowicz dauður,“ á árásarmaðurinn að hafa hrópað eftir að hafa stungið borgarstjórann.

Adamowicz er fyrrverandi flokksmaður í Borgaravettvangi (PO), en hann á ekki tengjast máli árásarmannsins á nokkurn hátt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×