Innlent

Starfsgreinasambandið metur hvort vísa eigi deilu til ríkissáttasemjara

Heimir Már Pétursson skrifar
Sautján aðildarfélög Starfsgreinasambandsins sitja sameiginlega við samningaborðið með Samtökum atvinnulífsins.
Sautján aðildarfélög Starfsgreinasambandsins sitja sameiginlega við samningaborðið með Samtökum atvinnulífsins. Vísir/Vilhelm
Samninganefnd sautján aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins er að meta stöðuna í viðræðum við atvinnurekendur og tekur meðal annars afstöðu til þess hvort vísa beri deilunni til ríkissáttasemjara. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir gott að Samtök atvinnulífsins hafi opnað á að nýir kjarasamningar gildi frá áramótum.

Sautján aðildarfélög Starfsgreinasambandsins sitja sameiginlega við samningaborðið með Samtökum atvinnulífsins eftir að fjölmennasta félagið Efling og Verkalýðsfélag Akraness gengu úr samstarfinu og vísuðu sínum málum til ríkissáttasemjara í samfloti með VR.

Stóra samninganefnd Starfsgreinasambandsins með formönnum aðildarfélaganna sautján situr nú á fundi til að meta stöðuna í viðræðunum við atvinnurekendur að sögn Flosa Eiríkssonar framkvæmdastjóra sambandsins. „Það er ætlunin að fara hér yfir vinnu undanfarinna vikna og mánaða. Við munum gera grein fyrir vinnunni í öllum undirhópunum. Stöðunni í kjaraviðræðunum almennt og í einstökum álitamálum,” segir Flosi.

Dagurinn í dag verði notaður til að fara yfir stöðuna í viðræðunum við Samtök atvinnulífsins og meta næstu skref. Flosi segir viðræðunum miða áfram en ekki liggi fyrir hvort farið verði að fordæmi Eflingar, Verkalýðsfélags Akraness og VR með að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. „Það eru tekin einhver skref í þessum viðræðum. Þau eru lítil og það er eitt af því sem metið verður á fundinum þegar líður á daginn; hvort og hvenær sé ástæða til að visa þessari deilu til ríkissáttasemjara.”

Þannig að það er á borðinu meðal annars, að ræða það?

„Það er allt á borðinu,” segir Flosi.

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í vikunni að atvinnurekendur væru tilbúnir til þess að láta nýja kjarasamninga gilda frá áramótum eftir að þeir nást ef samið verði á skynsamlegum nótum eins og hann orðaði það. „Við fögnum því að sjálfsögðu. Þetta var í upphaflegri kröfugerð Starfsgreinasambandsins sem lögð var fram í október. Að samningar eigi að gilda frá þeim degi sem þeir gömlu falla úr gildi. Við fögnum því náttúrlega að atvinnurekendur séu farnir að fallast á þá eðlilegu kröfu,” segir Flosi Eiríksson. Niðurstaða fundarins í dag verði síðan lögð undir samninganefndir félaganna sautján. Viðræðum við atvinnurekendur án þátttöku ríkissáttasemjara verði ekki haldið áfram nema eitthvað miði í viðræðunum.


Tengdar fréttir

Hugnast ekki hugmyndir um færri yfirvinnutíma

Samtök atvinnulífsins hafa lagt spilin á borðið og greint frá mögulegu svigrúmi til launahækkana að sögn formanns VR. Hækkunin mæti þó ekki kröfum VR, Eflingar og Verkalýðsfélags Akraness og þyrfti ríkið að stíga inn í til þess að brúa bilið. Fundað var í kjaradeilunni hjá ríkissáttasemjara í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×