Viðskipti erlent

Nældu sér í hræódýra miða á fyrsta farrými vegna mistaka flugfélagsins

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vél Cathay Pacific sést hér taka á loft frá Hong Kong þar sem höfuðstöðvar félagsins eru að finna.
Vél Cathay Pacific sést hér taka á loft frá Hong Kong þar sem höfuðstöðvar félagsins eru að finna. Getty/Marcio Rodrigo Machado
Flugfélagið Cathay Pacific segist ekki ætla að fara fram á að viðskiptavinir, sem nældu sér í flugmiða á fyrsta farrými á spottprís, greiði fullt verð fyrir miðana.

Um er að ræða miða í flug á milli Víetnam og New York, fram og til baka, í ágúst næstkomandi sem viðskiptavinirnir greiddu um 675 bandaríkjadali fyrir, eða um 78 þúsund íslenskar krónur. Það þykir lágt að sögn breska ríkisútvarpsins, ekki síst í ljósi þess að sambærilegir miðar í júlí og september kosta 16 þúsund dali, rúmlega 1,8 milljónir króna.

Flugfélagið viðurkennir að hafa gert mistök en segist engu að síður ekki ætla að fara fram á að hinir heppnu viðskiptavinir greiði mismuninn. Ekki liggur fyrir hversu margir keyptu umrædda miða en upp komst um verðlagninguna á gamlársdag og var verðið leiðrétt samdægurs.

Mistökin eru sögð kóróna erfitt rekstrarár hjá Cathay Pacific, sem hefur verið rekið með tapi undanfarin tvö ár. Félagið, sem gerir út frá Hong Kong, er sagt hafa átt erfitt með að bregðast við síharðnandi samkeppni í fluggeiranum, ekki síst með tilkomu fjölda lággjaldaflugfélaga í Suðaustur-Asíu.

Þá rataði flugfélagið í fréttirnar í september síðastliðnum þegar það neyddist til að senda eina vélina sína aftur í sprautun. Ástæðan var innsláttarvilla í nafni félagsins, fyrir vikið stóð „Cathay Paciic“ á vélinni.

Mánuði síðar var gerð tölvuárás á höfuðstöðvar flugfélagsins og náðu tölvuþrjótar að stela persónuupplýsingum næstum 9,4 milljón viðskiptavina Cathay Pacific.


Tengdar fréttir

Nokkur flugfélög hafa safnað upplýsingum um loftslag í háloftunum

Flugvélaframleiðandinn Airbus fagnaði því í byrjun vikunnar að þá voru liðin 20 ár frá fyrstu þátttöku vélar félagsins í MOZAIC-verkefninu (e. Measurement of Ozone by Airbus in-service Aircraft) þar sem farþegavélar í áætlunarflugi eru notaðar til þess að mæla meðal annars styrk ósonlagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×