Viðskipti innlent

Með tögl og hagldir í íslenskum sjávarútvegi

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda.
Eftir kaupin á kjölfestu­hlut í HB Granda er hann kominn með tögl og hagldir í íslenskum sjávarútvegi,“ segir einn álitsgjafi Markaðarins um viðskiptamann ársins 2018, að mati dómnefndar blaðsins, Guðmund Kristjánsson, aðaleiganda og forstjóra HB Granda.

„Hann hefur komið að öllum stærstu viðskiptum ársins í sjávarútvegi og er kominn með lykilstöðu í HB Granda,“ nefnir annar úr dómnefnd Markaðarins og undir það taka fleiri dómnefndarmenn sem segja Guðmund jafnframt hafa leitt tæknivæðingu og hagræðingu í íslenskum sjávarútvegi undanfarin ár.

„Viðskiptin eru framsýn,“ segir einn álitsgjafi um kaup Útgerðarfélags Reykjavíkur, sem er að mestu í eigu Guðmundar, á ríflega 34 prósenta hlut í HB Granda fyrir 21,7 milljarða króna í apríl á þessu ári og bætir við: „Guðmundur er orðinn forstjóri HB Granda og er þannig kominn í lykilstöðu í einu öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og því eina sem er skráð í kauphöll.“

Guðmundur kom sem stormsveipur inn í félagið í kjölfar kaupanna og ekki liðu nema tveir mánuðir þar til forstjórinn Vilhjálmur Vilhjálmsson fór frá borði og Guðmundur settist í forstjórastólinn í hans stað. Síðar um sumarið var svo tilkynnt um að HB Grandi hefði fest kaup á öllu hlutafé útgerðarfélagsins Ögurvíkur fyrir 12,3 milljarða króna. Seljandinn var Útgerðarfélag Reykjavíkur, áður Brim.

Útgerðarfélag Reykjavíkur seldi einnig þriðjungshlut sinn í Vinnslustöðinni til FISK Seafood fyrir um 9,4 milljarða króna en Guðmundur hefur lengi átt í hatrömmum deilum við meirihlutaeigendur í útgerðinni í Vestmannaeyjum.

„Sumir segja að þetta hafi verið úthugsað hjá honum og aðrir ekki,“ nefnir einn úr dómnefnd Markaðarins um kaupin í HB Granda, „en þetta voru flott viðskipti hjá honum og ég hef bullandi trú á þessu.“

„Margir héldu að með yfirtökuskyldunni yrðu kaupin í HB Granda of stór biti fyrir Guðmund,“ segir annar álitsgjafi, „en með sölu á þriðjungshlut í Vinnslustöðinni og sölunni á Ögurvík náði hann að klára kapalinn sem hann lagði við kaupin.

Hann þaggaði jafnframt niður í þeim efasemdaröddum sem heyrðust um kaup HB Granda á Ögurvík af Brim eftir að Kvika banki komst að þeirri niðurstöðu að kaupin væru hagfelld og að kaupverðið væri lægra en markaðsvirði eigna Ögurvíkur,“ bætir hann við.



Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Fréttablaðið/Auðunn

Þorsteinn Már í Samherja lét til sín taka

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, varð í öðru sæti í vali dómnefndar Markaðarins á viðskiptamanni ársins. „Hann gjörsigraði Seðlabankann, keypti ráðandi hlut í Eimskip á mjög hagstæðu verði og er orðinn einn öflugasti fjárfestirinn í Högum. Allt á einu ári,“ segir einn álitsgjafi um afrek Þorsteins Más á árinu sem senn er á enda.

„Hann hefur byggt upp stórfyrirtæki á farsælan hátt og alltaf staðið á sínu. Hann er með allt sitt á hreinu og sýndi það þegar Seðlabankinn var lagður,“ nefnir annar úr dómnefnd Markaðarins.

„Góður rekstrarmaður, seigur og úthaldsgóður,“ segir í rökstuðningi annars dómnefndarmanns. „Kóngur ársins,“ segir sá þriðji.

Árið var ansi viðburðaríkt hjá útgerðarrisanum sem Þorsteinn Már stýrir. Systurfélag Samherja keypti sem dæmi fjórðungshlut bandaríska fjárfestingarsjóðsins Yucaipa í Eimskip fyrir um 11 milljarða króna um miðjan júlí. Tæpum tveimur mánuðum síðar var Baldvin Þorsteinsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Samherja og sonur Þorsteins Más, kjörinn stjórnarformaður flutningafélagsins.

Einn álitsgjafi segir Samherja hafa náð að tryggja sér afgerandi hlut í Eimskip á „áhugaverðu verði“. „Margir telja að umtalsverð tækifæri séu til að skerpa á starfseminni og auka verðmæti félagsins. Þá þykir Samherji vera rétti eigandinn til að ná slíku fram,“ nefnir hann.

Í kjölfar kaupa Haga á Olís eignaðist Samherji jafnframt 5,1 prósents hlut í Högum en auk þess hefur útgerðin gert framvirka samninga um kaup á 4,1 prósents hlut til viðbótar.

Í nóvember staðfesti Hæstiréttur síðan dóm héraðsdóms sem hafði fellt úr gildi sekt sem Seðlabanki Íslands lagði á Samherja fyrir brot á gjaldeyrislögum. Lauk þar með málarekstri Seðlabankans gegn útgerðinni sem stóð yfir í tæp sjö ár.

Einn álitsgjafi Markaðarins nefnir að fyrir utan áframhaldandi lygilega arðsemi í rekstri Samherja séu forsvarsmenn félagsins orðnir „stórir þátttakendur vítt og breitt í íslensku atvinnulífi og á hlutabréfamarkaðinum með kaupum á lykilhlut í Eimskip af Yuicaipa. Samherjamenn eru sömuleiðis orðnir stórir hluthafar í Högum eftir bæði kaup á markaði og einnig í gegnum söluna á Olís,“ nefnir hann.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels.Fréttablaðið/Valli

Marel blómstrar undir stjórn Árna Odds

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, var mörgum dómnefndarmönnum Markaðarins ofarlega í huga við val á viðskiptamanni ársins.

„Þessi náungi er að spila í allt annarri deild en aðrir viðskiptamenn á Íslandi og er á toppi deildarinnar,“ segir einn álitsgjafi um forstjórann.

„Góður undirbúningur og traustari fjármögnun sem Árni Oddur náði sjálfur að tryggja á krítískum tímapunkti hefur lagt grunninn að þeirri siglingu sem Marel hefur verið á á árinu 2018,“ nefnir annar.

„Flest mælaborð í rekstrinum virðast vera í lagi og þrautseigjan er að skila þessu öðru veltumesta félagi á Íslandi á beina braut. Undirbúningur fyrir skráningu virðist vera það langt komin að fátt ætti að koma í veg fyrir hana,“ bætir hann við og á þar við fyrirhugaða tvíhliða skráningu hlutabréfa félagsins.

Til viðbótar við núverandi skráningu í íslensku kauphöllinni kemur til greina að skrá bréfin í Amsterdam, Kaupmannahöfn og Lundúnum. Um leið verður hlutafé félagsins aukið um að allt að 15 prósent.

„Árni Oddur er búinn að leiða Marel sem var eitt sinn lágstemmt verkfræðifyrirtæki með lausn fyrir sjávarútveg en er nú leiðandi fyrirtæki í matvælavinnslu á alþjóðavettvangi,“ segir í rökstuðningi eins álitsgjafa.

„Árni hefur sterka framtíðarsýn og er gríðarlega duglegur. Hann leiddi kaup á Maja á árinu og er að vinna statt og stöðugt að tvískráningu. Við erum ekki enn búin að sjá hápunktinn hjá Marel og það er víst að risar úti í hinum stóra heimi hafa komið auga á þetta framsækna og flotta fyrirtæki sem blómstrar undir stjórn Árna,“ nefnir hann.

„Að fyrirtæki, sem er löngu orðið leiðandi á heimsvísu í hátæknilausnum fyrir matvælaiðnaðinn, nái 14 prósenta tekjuvexti og 25 prósenta vexti í hagnaði á hlut á fyrstu níu mánuðum þessa árs er magnaður árangur,“ segir einn úr dómnefnd Markaðarins og bætir við:

„Fátt bendir til annars en að þessi velgengni muni halda áfram enda leggur fyrirtækið að jafnaði fimm til sex prósent af veltu í rannsóknir og þróun, hæsta hlutfall sem fyrirfinnst í greininni.“

Skúla Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air.Vísir/Friðrik Þór Halldórsson

Aðrir sem voru nefndir sem viðskiptamenn ársins

Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða. „Salan á Refresco skilaði gríðarlegum hagnaði og einnig gegndi hann lykilhlutverki í sameiningu N1 og Festar.“

Liv Bergþórsdóttir, fyrrverandi forstjóri Nova. „Byggði upp frábært félag og gengur nú frá vel unnu dagsverki.“

Sigurður Kjartan Hilmarsson, stofnandi Siggi’s skyr. „Sigurður virðist hafa gert mjög vel í uppbyggingu Siggi’s skyr yfir margra ára skeið og fjárfesting hluthafa reyndist happadrjúg.“

Ingibjörg Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jóhannesson, fjárfestar. „Eftir að hafa selt helstu eignir 365 miðla inn í Sýn seldu þau eignarhlut sinn í félaginu og fjárfestu í Högum. Gengi hlutabréfa Sýnar og Haga hefur frá þeim tíma þróast með gjörólíkum hætti.“

Kristján Loftsson, forstjóri Hvals. „Frábær sala á HB Granda, auk þess sem hann tryggði stöðu sína í Hval.“

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air. „Hefur haldið viðskiptalífinu í gíslingu í fleiri mánuði. Hann gengur lengra en að standa á bjargbrúninni og vonast eftir að það komi ekki vindhviða og feyki honum fram af. Hann stendur á brúninni og hallar sér fram og treystir á að það haldi áfram að blása á móti.“

Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical. „Fyrirtækið er orðið leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á búnaði til svefnrannsókna og er á meðal þeirra nýsköpunarfyrirtækja í Evrópu sem hafa vaxið hraðast á undanförnum árum.“

Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga. „Fyrirtækið er að uppskera árangur eftir markvisst uppbyggingarstarf á síðustu árum.“

Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður Veritas. „Leiddi fjárfestahópinn sem kom að uppbyggingu Festar og sölunnar til N1. Nær þrefaldaði fjárfestinguna á jafnmörgum árum.“

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP. „Endurreisti CCP og seldi fyrir háa fjármuni.“

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins. „Enginn hefur betur unnið úr sínu konsepti. Hefur náð að selja á háu verði mikla upplifun og haldið sérstöðu sinni og eftirspurn.“

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen. „Hefur leitt systurfyrirtækin Alvogen og Alvotech til mikillar sóknar á krefjandi mörkuðum og laðað að nýja fjárfesta í spennandi áhættuverkefni.“

Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Iceland Seafood International. „Búið að ganga mjög vel eftir yfirtökuna, sterkir bakhjarlar og færa sig á aðallistann, orðnir stærri en mörg fyrirtækin þar.“

Ingólfur Árnason, forstjóri Skagans 3X. „Uppbyggingarstarf hans er algerlega undir radarnum hér heima.“

Markaðurinn er hluti af Fréttablaðinu sem tengist Vísi ekki að öðru leyti en því að samkvæmt samningi Sýnar við Torg, sem rekur Fréttablaðið, birtist efni úr Fréttablaðinu á Vísi til 30. nóvember 2019.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×