Erlent

Tveir látnir og tíu særðir í skotárás í Strassborg

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Lögreglan hefur borið kennsl á árásarmanninn en hann gengur enn laus.
Lögreglan hefur borið kennsl á árásarmanninn en hann gengur enn laus. Vísir/ap
Tveir létu lífið og að minnsta kosti tíu eru særðir eftir skotárás í Strassborg í Frakklandi í kvöld.

Árásarmaðurinn hleypti af skotum nærri vinsælum jólamarkaði. Hann er talinn hafa særst í skotbardaga við lögreglu.

Árásarmaðurinn gengur enn laus en lögreglan telur sig vita hver hann er.

Íbúar í Neudorf og Etoile hverfinu er fyrirskipað að halda sig innandyra af öryggisástæðum.

Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir að svo stöddu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×