Viðskipti innlent

Ferðaþjónustan á Hveravöllum til sölu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá Hveravöllum.
Frá Hveravöllum. Vísir/vilhelm
Hveravallafélagið ehf. hefur sett starfsemi sína á Hveravöllum á söluskrá. Um er að ræða allar fasteignir, tækjabúnað, innviði og lóðarleigusamning til reksturs ferðaþjónustu á Hveravöllum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hveravallafélaginu.

Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line er stærsti eigandi Hveravallafélagsins. Aðrir hluthafar eru Húnavatnshreppur og Björn Þór Kristjánsson. Sveitarfélagið hefur óskað eftir því að fara út úr ferðaþjónusturekstrinum og eigendur Gray Line hafa ákveðið að einbeita kröftum sínum að rekstri eigin félags samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu við Skíðaskálann í Hveradölum.

„Hveravallafélagið hefur starfað áratugum saman á Hveravöllum. Síðustu árin hefur félagið varið um 100 milljónum króna í endurbætur húsa og búnaðar ásamt uppbyggingu innviða á borð við vatnsveitu og fráveitu í samstarfi við Umhverfisstofnun og fleiri aðila,“ segir jafnframt í tilkynningu.

Haft er eftir Þóri Garðarssyni, stjórnarformanni Hveravallafélagsins, að ferðaþjónustan á Hveravöllum skapi mikil tækifæri en sé um leið krefjandi verkefni fyrir rekstraraðila.

„Framundan eru miklir möguleikar í uppbyggingu og vöruþróun á svæðinu. Við teljum því mikilvægt að starfsemin komist í hendur aðila sem geta sinnt henni nú og til framtíðar. Með því að láta Hveravallafélagið af hendi getum við betur einbeitt okkur að uppbyggingaráformum í Hveradölum.“

Ferðaþjónustan á Hveravöllum er opin allan ársins hring. Um 10 þúsund manns gista þar árlega í skálum, tjöldum og húsbílum. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu komu um 80 þúsund manns til Hveravalla árið 2016. Þá liggur fyrir tillaga að byggingu nýrrar hálendismiðstöðvar í samræmi við landsskipulag. Bygging hálendismiðstöðvarinnar er fyrirhuguð utan friðlýsta hverasvæðisins til að stuðla að vernd þess og sjálfbærri þróun. Fasteignasala Mosfellsbæjar annast söluna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×