Erlent

Fjögur fyrirtæki ætla að skjóta eldflaug á loft á morgun

Samúel Karl Ólason skrifar
SpaceX ríður á vaðið með geimskoti ellefu mínútur yfir tvö á morgun.
SpaceX ríður á vaðið með geimskoti ellefu mínútur yfir tvö á morgun. Vísir/SpaceX
Fyrirtækin SpaceX, Blue Origin, Arianespace og United Launch Alliance ætla sér öll að skjóta eldflaug á loft og á morgun. Komi veðrið eða tæknilegir örðugleikar ekki í veg fyrir eitthvað af skotunum verður það í fyrsta sinn sem svo mörgum eldflaugum er skotið út í geim á einum sólarhring. Hægt verður að fylgjast með einhverjum geimskotanna hér á Vísi.

Áætlað er að ballið byrji ellefu mínútur eftir tvö á morgun, að íslenskum tíma, (9:11 í Flórída). Þá mun SpaceX skjóta Falcon 9 eldflaug á loft og er farmur eldflaugarinnar gervihnöttur fyrir her Bandaríkjanna. Ekki stendur til að reyna að lenda eldflauginni aftur þar sem gervihnötturinn þarf að fara á háa sporbraut.

Um einungis 19 mínútum síðar ætla starfsmenn Blue Origin, sem er í eigu Jeff Bezos, að skjóta New Shepard eldflaug á loft. Verkefnið er á vegum NASA og felur í sér ýmsar tilraunir þar sem nokkuð er um rannsóknarbúnað um borð í eldflauginni. Finna má upplýsingar um þær tilraunir hér á vef Blue Origin.



Ekki er vitað með vissu hvort til standi að reyna að lenda eldflauginni en Blue Origin hefur verið að þróa slíka tækni, eins og SpaceX.

Rúmum tveimur tímum eftir geimskot Blue Origin ætla starfsmenn franska fyrirtækisins Arianespace að skjóta gervihnetti á braut um jörðu frá Frönsku Gíneu. Notast verður við rússneska Soyuz eldflaug.

Fyrirtækið ULA, sem er í eigu Boeing og Lockheed Martin, mun svo skjóta Delta Heavy eldflaug á loft frá Kaliforníu klukkan 01:57 aðfaranótt miðvikudags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×