Fótbolti

David James rekinn frá Kerala Blasters

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
David James var spilandi þjálfari hjá ÍBV árið 2014
David James var spilandi þjálfari hjá ÍBV árið 2014 Vísir/Stefán
David James hefur hætt störfum sem knattspyrnustjóri Kerala Blasters á Indlandi. Hermann Hreiðarsson var aðstoðarmaður James hjá Kerala Blasters.

James tók við þjálfun Blasters árið 2014 sem spilandi þjálfari, ári eftir að hann hætti hjá ÍBV. Hann hætti hjá liðinu eftir tímabilið 2014.

Hann tók aftur við liðinu í janúar á þessu ári.

Lítið hefur gengið hjá Blasters það sem af er þessu tímabili og liðið hefur ekki unnið í síðustu 11 leikjum sínum. Eftir 6-1 tap um síðustu helgi var James látinn fara.

Blasters hefur haft nýjan þjálfara í upphafi hvers tímabils síðustu ár.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×