Erlent

„Kyssi þig blíðlega á hálsinn og hvísla g'day mate“

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Andrew Broad hefur sagt af sér í kjölfar málsins.
Andrew Broad hefur sagt af sér í kjölfar málsins. EPA/AAP
Fjöldi Ástrala hefur nú afneitað ástsælasta orðatiltæki þjóðarinnar, g‘day mate, í kjölfar kynlífshneykslis stjórnarþingmanns.

Málið varðar hátt settan þingmann, ávaxtaráðstefnu í Hong Kong og stefnumótasíðu fyrir svokölluð sykurbörn, ungt fólk sem sækist eftir sambandi með eldri, vel efnaðri, manneskju.

Andrew Broad hefur sagt af sér og segir pólitískan feril sinn á enda eftir að málið komst upp. Greint var frá því að hann hefði sent „g‘day mate“ í kynferðislegu samhengi til ungrar konu sem segist hafa kynnst honum á stefnumótasíðu. Broad hefur ekki viljað svara fyrir ásakanirnar en sendi frá sér yfirlýsingu.

Málið þykir koma illa við ríkisstjórnina, sem þykir eiga við kvennavandamál að stríða, það er að segja að konur kjósi síður frjálslynda flokkinn.

Konan sem kölluð er Amy segir að þingmaðurinn hafi sent henni skilaboð á Whatsapp. Hann hafi spurt hana hvort hún fílaði ástralska hreiminn. Hún hafi svarað því að henni fyndist þeir afar kynæsandi.

Næstu skilaboð frá Broad hafi þá verið:

„Ég toga þig að mér, renni sterkum höndum mínum niður bakið á þér, kyssi þig blíðlega á hálsinn og hvísla G‘day mate.“

„Ég er sveitagaur, þannig að ég kann að fljúga flugvél, ríða hesti og ríða konunni minni. Áform mín eru fullkomlega svívirðileg,“ á þingmaðurinn einnig að hafa sagt.

Fifty Shades of g'day

Áströlum finnst skilaboðin ýmist fyndin eða bagaleg. Hefur hneykslið verið kallað Fifty shades of g‘day, sem er vísun í bókina fimmtíu gráa skugga, en aðrir segja að g‘day hafi verið aflýst.

Konan hefur aðeins komið fram undir nafninu Amy í fjölmiðlum í Ástralíu og segir hún að Broad hafi kallað sig James Bond á stefnumóti þeirra og að hann hafi kvartað undan háu verðlagi á veitingastaðnum þar sem þau hittust.

Málið hefur sem fyrr segir varpað ljósi á vandamál frjálslynda flokksins þegar kemur að því að næla í atkvæði kvenna og því er spáð að kvenframbjóðendur hljóti góða kosningu í næstu kosningum sem fara fram í maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×