Stórleikur Bjarka sló Alexander og Guðjón út úr bikarnum Anton Ingi Leifsson skrifar 18. desember 2018 19:00 Bjarki var frábær í kvöld. vísir/getty
Füchse Berlín er komið í undanúrslit þýska bikarsins eftir sigur á Rhein-Neckar Löwen í framlengdum Íslendingaslag í átta liða úrslitunum, 37-35. Ljónin voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og voru þremur mörkum yfir að honum loknum, 17-14, en leikið var í Berlín. Refirnir komu sterkari inn í síðari hálfleikinn og náðu að minnka muninn í eitt mark. Það var svo á lokasekúndunum sem Daninn Hans Lindberg jafnaði metin í 30-30 og tryggði Füchse framlengingu. Füchse náði tveggja marka forystu í upphafi síðari hálfleiks framlengarinnar og það var bil sem Löwen náði aldrei að brúa. Lokatölur 37-35. Bjarki Már Elísson fór á kostum í liði Füchse. Hann varð markahæsti leikmaður þeirra með sjö mörk, ásamt Hans Lindberg sem skoraði sex af sjö mörkum sínum af vítalínunni. Alexander Petersson skoraði tvö mörk en var vísað í sturtu eftir þriðju brottvísunina í síðari hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson var hvíldur. Kiel hafði þegar tryggt sér sæti í undanúrslitunum en einn leikur í 8-liða úrslitunum fer fram síðar í kvöld og sá síðasti annað kvöld.
Handbolti Mest lesið Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Handbolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Handbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Fleiri fréttir Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Sjá meira