Fótbolti

HM félagsliða: Óvænt úrslit er Al Ain henti River Plate úr leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn fagna markverðinum Khalid Essa.
Leikmenn fagna markverðinum Khalid Essa. vísir/getty
Al Ain frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum er nokkuð óvænt komið í úrslitaleikinn á HM félagsliða sem er er haldið í Abu Dhabi um þessar mundir.

Al Ain gerði sér lítið fyrir og sló út River Plate eftir vítaspyrnukeppni. Staðan var 2-2 að loknum venjulegum leiktíma og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni.

Þar höfðu heimamenn betur gegn argentínska liðinu. Al Ain skoraði úr öllum vítaspyrnum en Khalid Essa varði spyrnu argentínska landsliðsmannsins Enzo Perez.

Annað kvöld fer fram leikur Evrópumeistara Real Madrid og Asíumeistarana í Kashima Antlers en sigurvegarinn úr þeirri viðureign spilar gegn Al Ain í úrslitaleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×