Körfubolti

Brooklyn Nets á sex leikja sigurgöngu eftir sigur á Lakers í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James í baráttu um frákastið við Rondae Hollis-Jefferson hjá Brooklyn Nets í nótt.
LeBron James í baráttu um frákastið við Rondae Hollis-Jefferson hjá Brooklyn Nets í nótt. Vísir/Getty
Los Angeles Lakers tókst ekki að komast aftur á sigurbraut í NBA-deildinni í nótt þegar liðið heimsótti Brooklyn Nets. Nýliðinn Luka Doncic átti enn einn frábæra leikinn en það dugði þó ekki Dallas Mavericks á móti efsta liði Vesturdeildarinnar Denver Nuggets. Cleveland endaði sjö leikja sigurgöngu Indiana Pacers á sigurkörfu Larry Nance Jr..









D'Angelo Russell átti mjög flottan leik á móti sinu gamla félagi þegar hann skoraði 22 stig og gaf 13 stoðsendingar í 115-110 sigri Brooklyn Nets á Los Angeles Lakers en spilað var í Brooklyn.

Joe Harris var með 19 stig fyrir Brooklyn liðið og Spencer Dinwiddie skoraði 18 stig. Þetta var sjötti sigurleikur liðsins í röð og það hefur ekki gerst síðan frá 25. mars til 3. apríl 2015.

LeBron James gerði vissulega sitt fyrir Lakers-liðið með því að skora 36 stig, taka 13 fráköst og gefa 8 stoðsendingar. Kyle Kuzma var með 22 stig og 11 fráköst og Lonzo Ball skoraði 23 stig.

Þetta hefur verið ýmist í ökkla eða eyra hjá Brooklyn Nets því áður en sigurgangan hófst þá tapaði liðið átta leikjum í röð. Sigurgangan hófst síðan með sigri á toppliði Toronto Raptors í framlengdum leik 7. desember síðastliðinn.









Nikola Jokic var með 32 stig og 16 fráköst þegar Denver Nuggets vann 126-118 sigur á Dallas Mavericks en þetta var sjöundi heimasigur Denver í röð. Nýliðinn frábæri hjá Dallas, Luka Doncic, setti nýtt persónulegt met með 12 stoðsendingum en hann skoraði einnig 23 stig í leiknum.

Jamal Murray var með 22 stig og 15 stoðsendingar fyrir Denver sem hefur nú unnið 21 af 30 leikjum sínum sem er jöfnun á bestu byrjunin í sögu félagsins. Denver byrjaði einnig svona vel veturinn 1976-77. Með þessum sigri heldur Denver ennþá naumu forskoti á Golden State Warriors í toppsæti Vesturdeildarinnar.











Larry Nance Jr. var hetja kvöldsins hjá Cleveland Cavaliers því hann tryggði liðinu 92-91 sigur á Indiana Pacers með flautukörfu en Nance endaði leikinn með 15 stig og 16 fráköst. Indiana var búið að vinna sjö leiki í röð fyrir leikinn en tapaði fyrir liði sem hafði aðeins unnið samtals sjö leiki allan veturinn.





Jeremy Lin skoraði 12 af 16 stigum sínum í lokaleikhlutanum þegae Atlanta Hawks vann 118-110 sigur á Washington Wizards í fyrsta leik Trevor Ariza með Washington eftir að hann kom í skiptunum við Phoenix Suns.

Ariza skoraði 19 stig og Bradley Beal var með 29 stig og 10 fráköst en það dugði ekki á móti Atlanta þar sem sjö leikmenn skoruðu tíu stig eða meira. John Collins var með 20 stig og 13 fráköst fyrir Hawks liðið og nýliðinn Trae Young skoraði 19 stig.

Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Denver Nuggets - Dallas Mavericks    126-118    

Atlanta Hawks - Washington Wizards    118-110    

Brooklyn Nets - Los Angeles Lakers    115-110    

Indiana Pacers - Cleveland Cavaliers    91-92   

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×