Handbolti

Sex íslensk mörk í stórsigri Kristianstad

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur var markahæstur Íslendinganna í kvöld.
Ólafur var markahæstur Íslendinganna í kvöld. vísir/getty
Kristianstad er áfram á toppnum í sænsku úrvalsdeildinni eftir sex marka sigur á Ystad, 30-24, á heimavelli í kvöld.

Kristianstad lenti í vandræðum í fyrri hálfleik og þegar liðin gengu til búningsherbergja voru meistararnir einu marki undir.

Þeir hins vegar stigu á bensíngjöfina í síðari hálfleik og náðu fljótt upp góðu forskoti. Munurinn varð svo að endingu sex mörk.

Sex íslensk mörk litu dagsins ljós en markahæstur Íslendinganna var Ólafur Guðmundsson með þrjú mörk. Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö og Teitur Örn Einarsson eitt.

Kristianstad er með sex stiga forskot á Malmö sem er í öðru sætinu en Ystads er í fjórða sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×