Handbolti

GOG ekki í undanúrslit þrátt fyrir sex mörk frá Óðni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Óðinn í leik með FH á síðustu leiktíð.
Óðinn í leik með FH á síðustu leiktíð. vísir/bára
Óðinn Þór Ríkharðsson heldur áfram að gera það gott í danska handboltanum en hann átti góðan leik fyrir GOG í kvöld.

Óðinn og félagar töpuðu þá með fimm mörkum, 35-30, á útivelli gegn Bjerringbro-Silkeborg eftir að hafa verið 16-14 undir í hálfleik.

Óðinn átti glæstan leik í hægra horninu. Hann skoraði sex mörk úr átta skotum sínum og var markahæsti leikmaður GOG í kvöld.

GOG er því úr leik í danska bikarnum en leikurinn var liður í 8-liða úrslitum keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×