Viðskipti innlent

Telur Icelandair undirverðlagt um 34%

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Capacent segir að rekstraráætlanir Icelandair hafi verið út og suður síðustu ár og að flugfélagið hafi kerfisbundið ofspáð um rekstrar­afkomu sína síðustu tvö ár.
Capacent segir að rekstraráætlanir Icelandair hafi verið út og suður síðustu ár og að flugfélagið hafi kerfisbundið ofspáð um rekstrar­afkomu sína síðustu tvö ár. Vísir/Vilhelm
Capacent metur gengi Ice­landair Group á 16,3 eða 34 prósentum hærra en markaðsgengi félagsins í gær. Verðmatið, sem birtist á föstudaginn, hækkaði um 25 prósent frá síðasta mati sem birt var 20. ágúst.

Hækkunina má einkum rekja til þess að krónan hefur veikst um 15 prósent gagnvart dollar. Það leiðir til lægri launakostnaðar sem hlutfalls af tekjum sem hækkar verðmatið mikið. Reiknað er með að hlutfallið verði 27 prósent á spátímabilinu samanborið við 32 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Meðaltal síðustu fimm ára er 26 prósent. Capacent reynir hvorki að spá fyrir um gengisþróun krónu né olíuverð heldur byggir á olíukostnaði og meðaltali af tekjum af flugfargjöldum síðustu fimm ára.

Capacent segir að rekstraráætlanir Icelandair hafi verið út og suður síðustu ár og að flugfélagið hafi kerfisbundið ofspáð um rekstrar­afkomu sína síðustu tvö ár. Það komi svo sem ekki á óvart. Þegar spáð sé um afkomu Icelandair þurfi að spá fyrir með nákvæmum hætti um þróun krónunnar og olíuverðs.

„Það er því ákveðin tegund skopskyns að ætla að spá fyrir um rekstrarafkomu Icelandair. Sveiflur í rekstraráætlun félagsins sjálfs hafa verið yfir 50 prósent það sem af er ári en ætla mætti að stjórnendur hefðu bestu mögulegar upplýsingar,“ segir í greiningunni. „Flugmarkaður er sveiflukenndur og fjárfestingafrekur og getur lítið frávík í forsendum t.d. er varðar olíuverð haft mikil áhrif á rekstrarafkomu og verðmat. Þessu til viðbótar bætist við áhættan af mjög sveiflukenndri smámynd hjá íslenskum flugfélögum.“

Fram kemur í greiningunni að mikil tækifæri felist í sameiningu við WOW fyrir Icelandair ef samruninn verður samþykktur af Samkeppniseftirlitinu. „Jafnljóst er að tíma mun taka að samþætta fyrirtækin og er dýr sameining í vændum.“ Óvarlegt sé að gera verðmat á sameinuðu félagi að svo stöddu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×