Viðskipti innlent

Rúmlega 100 milljónir enn ósóttar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það er af sem áður var.
Það er af sem áður var. Vísir/Vilhelm
Viðskiptavinir Spalar, félagsins sem sá um rekstur Hvalfjarðarganga, hafa sótt rúmlega helming þeirra fjármuna sem þeir áttu á áskriftarreikningum sínum þegar ríkið tók við rekstri ganganna. Alls áttu þeir um 231 milljón króna á reikningum sínum þegar afhending ganganna frá Speli til ríkisins átti sér stað í lok september en hafa síðan þá sótt um 120 milljónir króna.

Í tilkynningu frá félaginu eru viðskiptavinir Spalar hvattir til að skila veglyklum og áskriftarmiðum fyrir lok nóvember, enda sé stefnt að því að ljúka uppgjöri við alla þá sem skiluðu lyklum og miðum fyrir áramót.

Spölur tekur fram að félagið á umrædda veglykla og endurgreiðir viðskiptavinum sínum fyrir hvern lykil sem er skilað - auk innistæðnanna á áskriftarreikningum. Þeir sem af einhverjum ástæðum skila ekki veglyklum fái þannig engu að síður innistæður sínar greiddar, en ekki skilagjald.

Renna til reksturs

„Afsláttarmiðar hafa skilað sér hlutfallslega verr en veglyklar, eins og við var búist. Alls voru 111.000 ónotaðir miðar útistandandi í lok september, þegar Spölur hætti innheimtu veggjalda, að verðmæti um 71 milljón króna. Nú hefur Spölur greitt á átjándu milljón króna fyrir liðlega 27.000 miða,“ segir til upplýsingar í tilkynningu Spalar.

Því er þó bætt við að þessar tölur eigi einungis við um frágengin uppgjörsmál en „mun fleiri“ veglyklar og afsláttarmiðar séu komnir í hús og bíða úrvinnslu. „Nokkurn tíma tekur að vinna úr því sem safnast hefur fyrir á skrifstofu Spalar og við bætist svo allt það sem á eftir að skila sér til mánaðarmóta.“

Unnið verður að lokauppgjöri Spalar og frágangi að ýmsu tagi fram á árið 2019. Félaginu verður síðan slitið. Ef einhverjir fjármunir verða eftir í fórum Spalar, eins og ósóttar innistæður viðskiptavina, munu þeir renna til verkefna í tengslum við rekstur Hvalfjarðarganga.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×